Þann 27. júlí verður Pósthlaupið ræst í þriðja sinn í Dölunum en skráning er þegar hafin á hlaup.is. Í tilkynningu segir að Dalamenn og hlauparar hafi hist í gær til að stilla saman strengi og skipuleggja hlaupið.

Í Pósthlaupinu er farin gömul póstleið frá Hrútafirði yfir í Búðardal en hægt verður að velja úr þremur vegalengdum, 7 km, 26 km eða 50 km.

„Við tökum glöð á móti þeim sem vilja njóta náttúrunnar með okkur og útiveru, enda Dalamenn þekktir fyrir gestrisni sína. Dalirnir eru mikið sögusvæði, oftar er kannski fornsögunum gert hærra undir höfði og því skemmtilegt að hafa þennan viðburð sem heiðrar sögu nær okkar tímum og störf sem við þekkjum, “ segir Ingibjörg Jóhannsdóttir, einn af skipuleggjendum hlaupsins í Búðardal.

Í markinu í Búðardal verður boðið upp á súpu og ís frá Erpsstöðum, hoppikastala og jafnvel skokk um bæinn fyrir yngstu kynslóðina. Björgunarsveitin Ósk og Ungmennafélagið Ólafur pá fá allan þátttökueyrinn óskiptan.

Ungmennafélagið er eitt elsta starfandi félag í Dölunum en það varð 115 ára í febrúar. Félagið sér um rekstur líkamsræktarstöðvar í Búðardal og í tilefni af afmælinu mun bætast við 1,5 km hlaupaleið fyrir yngsta hópinn.

„Það besta við Pósthlaupið er þessi afslappaða sumargleði. Fólk er komið til að njóta náttúru, útsýnis og útiveru og einhverjir hafa sett sér markmið um árangur í hlaupinu. Gleðin er allsráðandi, til dæmis var gaman í fyrra þegar bændur tóku upp á því að skreyta heyrúllur með hvatningarorðum til hlaupara. Skemmtidagskráin sem tók við þegar allir voru komnir í mark er líka eftirminnileg,“ segir Ingibjörg að lokum.