Leikarinn og hlaðvarpsstjórnandinn Will Arnett hefur sett húsið sitt í Berverly Hills í Kaliforníu á sölu fyrir 22,5 milljónir dala. Arnett greiddi 16,4 milljónir fyrir eignina þegar hann keypti hana árið 2021.
Hið 956 fermetra sex svefnherbergja hús er staðsett í rúmlega kílómeters fjarlægð frá Beverly Hills-hótelinu og er skráð hjá Carolwood Estates.
Leikarinn, sem er þekktur fyrir hlutverk sín í þáttunum Arrested Development, 30 Rock og Bojack Horseman, hefur ekki svarað fyrirspurnum WSJ. Samkvæmt fasteignasalanum hans, Richard Ehrlich, hafði hann þó ætlað að selja húsið í langan tíma (og fyrir skógareldana í Los Angeles) þar sem hann eyðir meirum tíma í New York.
Eignin inniheldur einnig sundlaug, nuddpott, gufubað og kaldan pott. Á fyrstu hæð hússins má þar að auki finna leikhús, líkamsræktarstöð og leikherbergi.
Arnett eyddi milljónum dala í endurbætur á húsinu eftir að hafa keypt það og uppfærði meðal annars lagnirnar, lýsinguna og innréttinguna. Hann setti einnig upp hljóðeinangrað stúdíó fyrir bæði hlaðvörpin sín og talsetningu.
Garðurinn er einnig til fyrirmyndar en þar hefur hann skipt út grasinu fyrir plöntur, ólífutré og steinsteyptum stíg. Þar má líka finna matjurtagarð og setustofu fyrir hugleiðslu ásamt útisturtu.