Hyundai á Íslandi heldur upp á tuttugu ára afmæli sportjepplingsins Hyundai Tucson sem kom upphaflega á markað síðla árs 2004. Síðan þá hafa verið framleidd rúmlega sjö milljónir eintaka fyrir alla helstu markaði heims.

Afmælisútgáfa Hyundai Tucson 20th Anniversary Edition verður í sýningarsalnum með svörtum speglum og gluggaköntum og á 19 tommu satíngráum álfelgum.

Bíllinn er í tengiltvinnútfærslu (Plug-in Hybrid) með 1,6 lítra bensínvél sem skilar 252 hestöflum. Bíllinn er með fjórhjóladrifi og með allt að 63 km drægni á rafhlöðunni. Í bílnum eru tveir 12,3 stafrænir skjáir, annar fyrir mælaborð og hinn upplýsingasnertiskjáinn.

Einnig er í afmælisútgáfunni vandað hljóðkerfi með átta hátölurum auk bassahátalara frá Krell, þriggja svæða loftkæling auk upphitanlegra og loftræstra framsæta.