Bandaríkin hafa lengi vel verið þekkt sem þjóð sem kann að meta stóra pallbíla. Þeir finnast um allt land og eru þá sérstaklega vinsælir meðal fólks í dreifbýli og í tónlistarmyndböndum kántrísöngvara.
Aftur á móti eru litlir pallbílar frá Japan farnir að stela hjörtum Bandaríkjamanna. WSJ fjallaði nýlega um hina svokölluðu Kei-pallbíla sem eru að aukast í vinsældum. Meira að segja bílstjórar í kúrekaríkinu Texas hafa tekið bílnum fagnandi.
Kei-pallbílarnir, eða vörubílarnir, eru agnarsmáir og notast við vél sem er yfirleitt fundin í mótorhjólum. Þeir bjóða hins vegar upp á jafn mikið geymslupláss og hinn venjulegi pallbíll sem framleiddur er í Detroit.
Bílarnir eru fullkomið sambland af stærð og nytsemi og eru vinsælir í heimalandi sínu, þar sem bæði rými og auðlindir eru af skornum skammti.
Tim Odom, umboðsaðili fyrir bílana í Huffman í Texas, segir að sala á Kei-vörubílunum hafi stóraukist frá því hann byrjaði að flytja þá inn frá Japan fyrir rúmlega fimm árum síðan. Hann segir að margir af sínum viðskiptavinum séu veiðimenn og útivistarfólk sem finnst amerískir pallbílar vera of stórir.