Nýherji hefur lokið við uppsetningu á IP símkerfi frá Cisco Systems fyrir KB banka sem mun þjóna höfuðstöðvum fyrirtækisins við Borgartún 19 og útibúum þess, bæði hérlendis og erlendis. ,,Með því að tengja kerfið við útibú KB banka víðsvegar um heiminn næst mikill sparnaður og hagræðing þar sem hægt er að samnýta gagnaflutningssambönd fyrir tal og tölvugögn," segir Geir Sæmundsson, net- og símamálum KB banka. Nýherji setti jafnframt upp Netwise skiptiborðslausn fyrir símaþjónustuver bankans sem mun m.a. halda utan um fjölda símtala og kostnað vegna þeirra með hagkvæmari og skilvirkari hætti en áður, segir Geir.
Geir segir að ákveðið hafi verið að velja Cisco IP símkerfi og Netwise skiptiborðslausn frá Nýherja þar sem starfsmenn fyrirtækisins búi yfir mikilli reynslu og þekkingu á þessu sviði. ,,Uppsetning kerfisins tók mjög skamman tíma sem skiptir að sjálfsögðu gífurlega miklu máli fyrir fyrirtæki með yfir 1000 starfsmenn og starfsstöðvar víða um heim." Hann segir að lausnin bæti mjög skilvirkni varðandi símsvörun sem muni leiða til aukinna þæginda fyrir starfsmenn og viðskiptavini fyrirtæksins. ,,Cisco IP kerfið gerir okkur til að mynda kleift að setja á fót símahópa á meðal starfsmanna sem eiga að stuðla að bættri skilvirkni og tryggja að við töpum ekki dýrmætum símtölum viðskiptavina okkar. Ef það er til dæmis á tali hjá einum starfsmanni þá hringir hjá öðrum o.s.frv."
Cisco IP símkerfið byggir á Cisco Call Manager hugbúnaði sem keyrir á IBM netþjónum sem vinna saman í klasa til að auka uppitíma og afköst. IP símkerfið er með talhólfakerfi sem er samtengt við Microsoft Exchange á þann hátt að kerfið nýtir pósthólf starfsmanna til að geyma talhólfaskilaboð. Starfsmenn KB banka fá því bæði tölvupóst og talhólfaskilaboð í pósthólfið sitt. Þannig geta starfsmenn hlustað á talvélina lesa póstinn í gegnum talhólf símans.
Að sögn Geirs er markmiðið með Netwise skiptiborðslausninni að halda utan um fjölda símtala og kostnað vegna þeirra með hagkvæmari og skilvirkari hætti en áður. ,,Þannig stefnum við á að bæta þjónustu við viðskiptavini enn frekar en þó með hagkvæmari hætti. Netwise mun t.a.m. sjá um að halda utan um símtöl sem berast til símstöðvar fyrirtækisins og sér um að vísa þeim á réttar útstöðvar hennar, þ.e. í síma, talhólf, talvél eða skiptiborðið."
Sérfræðingar Nýherja hafa yfir að ráða mikilli reynslu og þekkingu í lausnum frá Cisco Systems og Netwise. Cisco Systems og Nýherji gerðu fyrir nokkru ?Systems Integrator" samning en slíkur samningur er einungis boðinn þeim samstarfsaðilum Cisco sem búa yfir þekkingu og reynslu til að hanna og setja upp flóknar tæknilausnir sem byggja á Cisco tækni. Í kjölfarið fékk Nýherji mun betri aðgang að tækniþekkingu og þjónustu hjá Cisco sem gerir Nýherja kleift að þjónusta enn betur viðskiptavini fyrirtækisins í Cisco lausnum. Að auki hefur Nýherji öðlast ,,IP Communications Express Specialization" hjá Cisco Systems og er eina fyrirtækið á Íslandi með slíka vottun. Í henni felst að starfsmenn Nýherja búa yfir sérþekkingu og reynslu við að selja, hanna, innleiða og þjónusta IP lausnir fyrir íslensk fyrirtæki.