Land Rover kynnti nýlega öflugasta og kraftmesta Defender sem framleiðandinn hefur sett á markað. Bíllinn nefnist Defender Octa og er einungis í boði hér á landi með sérpöntun.
Defender Octra er búinn 635 hestafla 4,4 lítra V8 bensínvél með mildu tvinnkerfi (twin-turbo) til aðstoðar, en saman koma aflrásirnar bílnum á aðeins fjórum sekúndum úr kyrrstöðu í 100 km/klst.
Þá er bíllinn einnig með nýjum og breyttum framstuðara sem bæði kallar fram harðgerara útlit en stuðlar einnig betur að meiri kælingu á uppfærðri V8 vélinni. Að auki er vaðgeta Defender OCTA allt að einn metri sem er 10 sentimetrum meiri vaðdýpt en annarra útgáfa Defender.
Defender Octa er ekki aðeins sérlega kraftmikill og snarpur, heldur er hann einnig sérstaklega hannaður fyrir akstur um torfærar slóðir. Octa er t.d. hærri undir lægsta punkt en fyrri gerðir Defender, er á 20" álfelgum á háum grófmynstruðum hjólbörðum og er bíllinn að auki búinn öflugri undirhlíf úr graníti milli framhjóla til að vernda betur undirvagninn gegn hnjaski og áberandi rispum.
Þess má að lokum geta að fyrir lúxusupplifun ökumanns og farþega má geta þess að Defender Octa er búinn nýrri kynslóð hljóðtækni sem inniheldur m.a. sk. „vibro-acoustic“ tækni (SUBPACTM Body & Soul) þar sem bak framsætanna innihalda sex bassahátalara með mismunandi stillingum.