Tómas Johannessen er leikmaður Gróttu á Seltjarnarnesi. Hann útskrifaðist nýverið úr Valhúsaskóla og hefur leikið á alls oddi í sumar.

Hann hefur skorað þrjú mörk í níu leikjum og hefur tvisvar sinnum verið valinn í lið vikunnar í Lengjudeildinni.

Tómas er ekki samningsbundinn Gróttu og hann á sér stóra drauma. Markmiðin hans eru að vinna Meistaradeild Evrópu og vera valinn besti leikmaður í heimi.

Tómas hefur tvisvar sinnum verið valinn í lið umferðarinnar í Lengjudeildinni á þessu tímabili.
Tómas hefur tvisvar sinnum verið valinn í lið umferðarinnar í Lengjudeildinni á þessu tímabili.

Hver er fyrsta fótboltaminningin þín?

Þegar ég var að horfa á eldri bræður mína keppa með 5. flokki á móti á Selfossi og einhver í liðinu meiddist og þjálfarinn henti mér inn á. Þarna var ég í 7. flokki og skoraði 3 mörk í 4-3 sigri.

Eftir leik man ég eftir því að ein mamman í liðinu var að skamma þjálfarann því hún var brjáluð yfir því að hann hafi sett mig inn á, það væri svo mikil niðurlæging fyrir strákana að spila með svona yngri strák.

Ertu alinn upp við mikinn fótbolta?

Nei í rauninni ekki.

Hverjir eru styrkleikarnir þínir?

Það er erfitt að vera dómari þegar maður á sjálfur í hlut en mer finnst ég mjög öflugur með boltann í löppunum

Í hverju langar þig að bæta þig sem leikmaður og/eða einstaklingur?

Þarf að bæta skotin mín og bæta mörkum við minn leik.

Tómas Johannessen leikmaður Gróttu.
Tómas Johannessen leikmaður Gróttu.
© Eyþór Árnason (Eyþór Árnason)

Hvernig er rútínan þín á leikdegi?

Er ekki með neina sérstaka rútínu, bara vakna tímanlega, borða vel og vera klár.

Hver er erfiðasti andstæðingur sem þú hefur mætt?

Leandro Trossard, leikmaður Arsenal var í fríi og að heimsækja gamla liðið sitt sömu viku og ég var á reynslu hjá Genk. Það var helvíti skemmtilegt og hann ágætur í fótbolta.

Hver er sætasti sigurinn?

Tapaði úrslitaleiknum á Orkumótinu í Vestmannaeyjum og á N1 mótinu á Akureyri þannig á ég á ennþá eftir að upplifa einhvern alvöru sætan sigur.

Hver eru markmiðin þín?

Vinna Ballon d’Or, árlega viðkenningu sem besti fótboltamaður heims hlýtur.

Hver er fyrirmyndin þín?

Kristján Daði Finnbjörnsson, þjálfarinn minn í fimmta og sjötta flokki í Gróttu. Hann er einnig umboðsmaðurinn minn í dag.

Hvert er draumaliðið þitt?

Á ekkert draumalið en væri til í að vinna Meistaradeild Evrópu með einhverju under dog liði.

Áttu skemmtilega sögu úr fótboltaferð?

Nei í rauninni ekki, bara fyndið hvað Sölvi Stefánsson, leikmaður Víkings í Reykjavík og herbergisfélagi minn gleymir alltaf fundum í landsliðsferðum og ég þarf að bjarga honum út úr þeim vandræðum.

Tómas á ennþá eftir að upplifa alvöru sætan sigur.
Tómas á ennþá eftir að upplifa alvöru sætan sigur.

Hvað gerir þú á hvíldardegi?

Engin rútína, fer eftir því hvernig ég er. En æfi oftast.

Skemmtileg staðreynd um þig?

Er geggjaður í eldhúsinu. Ættir að smakka ristað brauð og egg hjá mér.

Tölfræði

  • Fæðingarár: 2007
  • Félag: Grótta
  • Staða: Framherji
  • Fyrsti leikur í meistaraflokki: HK – Grótta, 24.maí 2022 – 15 ára og 7 daga gamall.
  • Leikir í meistaraflokki: 19
  • Mörk í meistaraflokki: 4
  • Landsleikir: U-17 leikir: 9, U-16 leikir: 3
  • Landsliðsmörk: U-16 mörk: 1

Tölfræði til og með 19. júní.

Viðtöl við alla knattspyrnuleikmennina má lesa í blaðinu Eftir vinnu, sem kom út í gær.