Nýr og magnaður BMW M5 G90-sportbíll var kynntur á dögunum en M5 hefur verið flaggskip M-deildar þýska lúxusbílaframleiðandans síðan á níunda áratugnum. Sá fyrsti M5 kom á markað árið 1985 en það var M5 E28.
Síðan hafa komið sjö kynslóðir og sú nýjasta er G90-sportbíllinn sem er sagður afar vel heppnaður bæði í útliti og aksturseiginleikum.
Nýr M5 G90 er með 4,4 lítra V8-vél í tengitvinnkerfinu sem skilar 727 hestöflum og hámarkstogið er alls 1.000 Nm. Sportbíllinn er með framúrskarandi tækni og búinn mjög góðum aksturseiginleikum.
Bíllinn er með X drive fjórhjóladrifinu frá BMW sem er framúrskarandi og gefur bílnum enn meiri stöðugleika í akstrinum, sérstaklega að vetrarlagi. Sportbíllinn fer úr kyrrstöðu í hundraðið á einungis 3,4 sekúndum.