Hinn stórskemmtilegi Mercedes-Benz G-Class jeppi var prófaður í afar krefjandi torfærubrautum í Graz í Austurríki á dögunum. Þarna voru líka þrautabrautir á jafnsléttu þar sem ekið var hratt og á sleipu yfirborði. Sama hvernig tekið var á Gelandewagen, eins og hann heitir á frummálinu, í ýmsum mismunandi þrautum þá sýndi jeppinn hversu gríðarlega öflugur hann er.
Ég prófaði fyrst G 450 í dísilútfærslu. Vélin skilar 367 hestöflum. Það var prófraun framundan í háum brekkum. Jeppinn fór ótrúlega létt upp og ég nýtti yfirleitt tvær driflæsingarnar af þremur. Stundum notaði ég allar þrjár. Ein brautin var með risastórum holum, klöppum og grjóti. Ég horfði á brautina og trúði varla að það væri verið að láta mig keyra þessa grjótbrekku upp og niður. En sú varð raunin og Gjeppinn stóð algjörlega fyrir sínu. Ég var í fyrsta gír í beinskiptingu á leið niður og með fyrstu og aðra driflæsingu á.
Á leiðinni upp grjótbrekkuna ók ég í 2. gír í beinskiptum og upp fór jeppinn upp án þess að lenda í erfiðleikum, stoppa eða spóla. Þarna kom berlega í ljós hversu framúrskarandi gripið er í jeppanum og hve klifurhæfileikar hans eru magnaðir.
4,3 sekúndur í hundraðið
Næsta þraut var skemmtilegur hraðakstur á Mercedes-AMG G 63. Ofurútgáfan er með 585 hestöfl, auk 20 hestafla frá rafmagni, undir húddinu og brjálæðislegan kraft.
Það var ekið hratt á flugbrautinni sem notuð var í þennan hraðakstur. Jeppinn þaut úr kyrrstöðu í hundraðið á einungis 4,3 sekúndum. Þetta var eins og að vera í þotu í svakalegu upptakinu. Það var sveigt og beygt á milli keilna á 60-70 km hraða og bannað að bremsa. Þetta var eins og að keppa í stórsvigi. Og ekki að sökum að spyrja að þessi stóri jeppi steinliggur á veginum í öllum sveigjunum. Þá var G-Class rafbíllinn einnig prófaður í ýmsum þrautum á flugbrautinni þar sem æft var m.a. viðbragð við að bremsa í hálku og ná stjórn á bílnum. Einnig var æft hvernig á að stýra framhjá hugsanlega gangandi eða hjólandi vegfarendum. Þarna sýndi bíllinn einnig hversu stöðugur og öruggur hann er í ýmsum aðstæðum.
Skógartorfærur á rafútgáfunni
Nýstárleg hönnun G-Class felur í sér De Dion fjöðrun á afturöxli. De Dion fjöðrunin er nefnd eftir franska greifanum Jules-Albert de Dion sem var stofnandi og hugmyndasmiður De Dion-Bouter bílaframleiðandans sem starfaði á árunum 1883 til 1953. Fyrirtækið fann upp öxullinn árið 1894.
Hönnunin í Gel er með aðskildum driföxlum sem gerir að verkum að hægt er að festa rafmótorana að aftan við undirvagninn. Þetta tryggir stöðugan hjólhalla, óháð hreyfingum fjöðrunarinnar, sem skilar sér í enn betri stöðugleika og stjórnun á bílnum.
Þetta er ævintýralegur akstur en G-Class rafbíllinn er óstöðvandi í þessum torfærum í skóginum með eDrive rafmótorinn við hvert hjól til að tryggja nákvæma togstýringu.
Rafbíllinn er með meiri vaðdýpt en venjulega gerðin og fór létt með vatn sem vaðið var út í. Vatnið var samt komið nánast upp að hliðargluggum og upp á húddið á jeppanum