Í tilefni af Nordic Women in Tech Awards sem haldið er á Íslandi í ár, hélt Origo ásamt Boozt viðburð í gær þar sem rætt var um nýsköpun og konur í tæknigeiranum.
Samkvæmt fréttatilkynningu var viðburðurinn vel sóttur, en yfir 130 innlendir og erlendir gestir komu þar saman.
Rasmus Bruun samskiptasérfræðingur hjá Boozt stjórnaði pallborðsumræðum þar sem Dröfn Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri Mannauðssviðs Origo, Plamena Cherneca framkvæmdastjóri Nordic Women in Tech Awards og Sarina Bibæk forritari hjá Boozt voru viðmælendur.
Arna Harðardóttir framkvæmdastjóri Helix ræddi um hvernig hægt er að nýta stafrænar lausnir í heilbrigðisþjónustu en nýlega breyttust Heilbrigðislausnir Origo í sjálfstætt félag að nafni Helix. Kristín Hrefna Halldórsdóttir forstöðumaður Gæða- og Innkaupalausna Origo ræddi um það hvernig hún leiddist út í tæknigeirann og hvernig hægt sé að breyta leiknum með tækninni.
Nordic Women in Tech Awards er haldið árlega með það að markmiði að auka sýnileika framúrskarandi kvenna í tæknigeiranum og hvetja yngri kynslóðir kvenna til að sækja í tæknistörf.
„Þetta snýst um að efla fjölbreytileikann því þannig sköpum við betri jarðveg fyrir nýsköpun, svo við megum aldrei gleyma að setja upp fjölbreytileika – gleraugun. Þetta höfum við ávallt hugfast í öllum okkar ráðningum“ sagði Dröfn Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Mannauðssviðs Origo.
Jón Björnsson forstjóri Origo hélt einnig tölu á fundinum. Myndirnar má sjá hér að neðan.