Fjöldi gesta mætti á Ársfund atvinnulífsins sem haldinn var í Borgarleikhúsinu.
Sigríður Margrét Oddsdóttir, sem tók við sem framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins í september, flutti ræðu á fundinum.
Ljósmynd: María Kjartans
Deila
Ársfundur atvinnulífsins var haldin í Borgarleikhúsinu á fimmtudaginn. Fundurinn, sem haldinn er af Samtökum atvinnulífsins, hefur fest sig í sessi sem mikilvægur vettvangur atvinnulífs og stjórnmála til að ræða brýn málefni samfélagsins og leiðir til að bæta lífskjör landsmanna. Að þessu sinni var sjónum beint að stóra verkefninu framundan, sem eru kjaramálin og framtíð íslensks atvinnulífs.