AECO – Samtök leiðangurskipa á Norðurslóðum héldu móttöku um borð í skipinu SH Vega í gömlu höfninni í Reykjavík. Móttakan gaf hagaðilum innsýn í leiðangurskipasiglingar og starf AECO að ábyrgri og sjálfbærri ferðaþjónustu á svæðinu.
Samtök leiðangurskipa á Norðurslóðum (AECO) standa fyrir hagsmunum fyrirtækja sem bjóða upp á leiðangurskipasiglingar og tengdum hagaðilum.

Móttakan var haldin í samstarfi við Swan Hellenic en þar komu saman sendiherrar, fulltrúar sendiráða og íslenskrar ferðaþjónustu og Landhelgisgæsla Íslands.
Auðunn Kristinsson, framkvæmdastjóri aðgerðarsviðs Landhelgisgæslu Íslands, ávarpaði gesti og lagði áherslu á sterkt og virkt samstarf AECO og Landhelgisgæslunnar í öryggis- og björgunarmálum (SAR). Samstarfið mun svo halda áfram með nýrri sameiginlegri björgunaræfingu á næsta ári.

Viðburðurinn markaði upphaf ferðalags SH Vega meðfram ströndum Íslands, þar sem AECO og Swan Hellenic munu taka á móti hagaðilum um borð til að miðla þekkingu og efla gagnkvæman skilning, og þar með styrkja tengsl og samvinnu milli strandbyggða og leiðangurskipa.

„Með samfélagstengslum og hagaðilasiglingum viljum við tryggja að heimsóknir leiðangurskipa séu velkomnar og metnar að verðleikum og auðgi, ekki aðeins fyrir ferðalanginn heldur einnig samfélögin sem við heimsækjum,“ sagði Frigg Jørgensen, framkvæmdastjóri AECO.

Eftir fyrsta viðkomustaðinn í Reykjavík sigldi skipið til fimm bæja með fram strönd Íslands.
Samkvæmt tilkynningu lögðu þátttakendur í ferðinni áherslu á mikilvægi þess að starfsemi greinarinnar sé í takt við samfélög á norðurslóðum með því að hlusta á sjónarmið heimamanna, skapa atvinnutækifæri og leggja áherslu á vörur og þjónustu úr héraði.

„Við erum afar stolt af því að nýjasta skipið okkar, SH Vega, sem er íshert og hannað með sjálfbærni að leiðarljósi, hafi verið valið til að sýna hvernig leiðangurskip geta verið virkur þátttakandi í sjálfbærri ferðaþjónustu,“ sagði Andrea Zito, forstjóri Swan Hellenic.