Klúðurkvöld Startup SuperNova fór fram í síðustu viku en þar stigu íslenskir frumkvöðlar fram og deildu reynslu sinni af því þegar hlutirnir fóru ekki alveg eins og til stóð en urðu að dýrmætum lærdómi.

Viðburðurinn var haldinn í tengslum við Icelandic Innovation Week, en markaði jafnframt opnun umsókna í viðskiptahraðalinn Startup SuperNova, sem KLAK stendur að í samstarfi við Nova og Huawei.

Hraðallinn er ætlaður sprotum með alþjóðlega vaxtarmöguleika sem vilja hraða þróun sinni með stuðningi sérfræðinga, handleiðslu og tengingum inn í nýsköpunarumhverfið.

Gestir fengu innsýn í raunverulegar áskoranir og mistök sem spretta úr frumkvöðlastarfi, þegar fjórir áhrifamiklir frumkvöðlar sögðu frá eigin reynslu með einlægni, húmor og hugrekki.

Fram komu:
Gerður Arinbjarnar, stofnandi og framkvæmdastjóri Blush
Tryggvi Björn Davíðsson, meðstofnandi og framkvæmdastjóri Indó
Jóhann Guðbjargarson, stofnandi og framkvæmdastjóri PLAIO
Helga Oddsdóttir, stofnandi og framkvæmdastjóri Opus Futura

„Það er mikilvægt að vekja athygli á því að frumkvöðlastarf er ekki alltaf dans á rósum og eintómir sigrar. Þetta kvöld minnti okkur á að mistök eru órjúfanlegur hluti af ferðalaginu, og oft mikilvægasti lærdómurinn,“ segir Ásta Sóllilja Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri KLAK - Icelandic Startups.
