Lokahóf Mentorverkefnis FKA Framtíðar 2024-2025 fór fram á dögunum í nýjum höfuðstöðvum Reiknistofu Bankanna að Dalvegi 30.

Ragnhildur Geirsdóttir, forstjóri RB fór yfir sögu fyrirtækisins og hennar vegferð en hún hefur verið dyggur bakhjarl FKA Framtíð og verið mentor í Mentorverkefninu ásamt því að hafa tekið þátt í fleiri en einni ráðstefnum hjá deildinni.

Í fyrra var FKA Framtíð með ráðstefnu sem bar heitið “Hver er næst í Kauphöllina?” og þar komu saman konur sem hafa stýrt fyrirtækjum skráðra félaga í Kauphöllinni.

Því næst tók Greta Lind Kristjánsdóttir, forstöðumaður kerfisþjónustu, til máls og hélt erindi um sína vegferð sem mentor. Hún útskýrði fyrir viðstöddum að þetta væri ekki einhliða vinna mentors með sinni mentée, heldur verkefni sem gefur mikið fyrir báða aðila.

Konur læra hver af annarri og öðlast nýja sýn á málin frá báðum sjónarhornum. Að mati viðstaddra fyllti frásögn Gretu Lindar konur af mikilli hvatningu. Að lokum sögðu Kristín Sverrisdóttir og Íris Guðnadóttir frá reynslu sinni sem mentée, en verkefnið hafði hjálpað þeim bæði í lífi og starfi.

Viðburðurinn markar lokin á samstarfi þar sem 160 konur úr ólíkum atvinnugeirum fengu tækifæri til að efla sig bæði persónulega og faglega með aðstoð reynslumikilla leiðtoga úr atvinnulífinu. Verkefnið hefur vakið mikla athygli og hefur nú þegar verið tekið upp innan nokkurra fyrirtækja á landinu.
