Samorkuþing er stærsta fagráðstefna landsins í orku- og veitutengdri starfsemi og er haldið á þriggja ára fresti á Akureyri. Í ár er boðið upp á um 130 fyrirlestra í alls 25 málstofum um fjölbreytt viðfangsefni orku- og veitufyrirtækja á Íslandi. Þingið var haldið í Hofi nú fyrir helgi.

Samorka fagnar 30 ára afmæli í ár og í mars var haldinn stærsta ársfundur samtakanna til þess og sömu sögu er að segja af Samorkuþinginu, sem aldrei áður hefur verið jafn vel sótt.

Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, flutti erindi á þinginu, þar sem hann fór yfir stefnu ríkisstjórnarinnar í orkumálum.
© Auðunn Níelsson (Aðsend)
Breki Logason, samskiptastjóri OR, stýrði pallborðsumræðum með Páli Erland, forstjóra HS Veitna, Jóhanni Páli Jóhannssyni ráðherra, Kristínu Lindu Árnadóttur, aðstoðarforstjóra Landsvirkjunar og Guðmundi Inga Ásmundssyni, forstjóra Landsnets.
© Auðunn Níelsson (Aðsend)
Kristian Ruby, framkvæmdastjóra Eurelectri, fjallaði um orkuöryggi á rafmagnsöld.
© Auðunn Níelsson (Aðsend)
Páll Erland, forstjóri HS Veitna, ræddi veiturekstur á tímum náttúruhamfara.
© Auðunn Níelsson (Aðsend)
Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri Orkuveitur Reykjavíkur.
© Auðunn Níelsson (Aðsend)
Hanna Björg Konráðsdóttir, sviðsstjóri hjá Orkustofnun, flutti erindi um raforkueftirlit.
© Auðunn Níelsson (Aðsend)
Rún Ingvarsdóttir, samskiptastýra Veitna, Steinunn Þorsteinsdóttir, upplýsingafulltrúi Landsnets, Sigrún Inga Ævarsdóttir, samskiptastjóri HS Veitna, Ólafur Elínarson, samskiptastjóri Carbfix, Þóra Arnórsdóttir, hjá Landsvirkjun og Breki Logason, hjá OR.
© Auðunn Níelsson (Aðsend)
Gestir Samorkuþings nutu veðurblíðunnar á Akureyri þegar þingið fór fram.
© Auðunn Níelsson (Aðsend)
Árni Páll Árnason, varaforseti Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA), flutti erindi á Samorkuþingi.
© Auðunn Níelsson (Aðsend)
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, ræddi raforkumarkaðinn frá sjónarhóli samkeppnismála.
© Auðunn Níelsson (Aðsend)
Aldrei hafa fleiri mætt á Samorkuþing en nú á 30 ára afmælisári Samorku.
© Auðunn Níelsson (Aðsend)