Aðalfundur Ungra athafnakvenna (UAK) fór fram í gær, mánudaginn 26. maí í höfuðstöðvum Deloitte, þar sem ný stjórn og formaður voru kjörin fyrir starfsárið 2025 - 2026.

Melkorka Mist Gunnarsdóttir, nýkjörinn formaður UAK og Ólöf Kristrún Pétursdóttir Blöndal, fráfarandi formaður UAK.
© Anton Brink (Anton Brink)

Fundurinn markaði lok starfsárs þar sem félagið stóð fyrir 16 viðburðum en félagið hefur séð fyrir öðrum viðburðum eins og fyrirtækjaheimsóknum og tengslakvöldum á liðnu starfsári.

Ný stjórn UAK fyrir starfsárið 2025 - 2026.
© Anton Brink (Anton Brink)

Á fundinum var gerð grein fyrir starfsemi og rekstri félagsins á liðnu starfsári. Þá var ársreikningur félagsins borinn upp til samþykktar og kom fram að fjölmörg fyrirtæki styrktu félagið á árinu, þar á meðal Sjóvá, Landsvirkjun, Arion banki, JBT Marel, Nasdaq og Deloitte.

Ólöf Kristrún Pétursdóttir Blöndal, fráfarandi formaður UAK var fundarstjóri.
© Anton Brink (Anton Brink)

Að lokum var komið að kosningu til stjórnar og formanns. Fjórar stjórnarkonur, Bryndís Rún Baldursdóttir, Kamilla Tryggvadóttir, Ólöf Kristrún Pétursdóttir Blöndal og Sóley Björg Jóhannsdóttir luku tveggja ára stjórnarsetu og voru því fjögur stjórnarsæti laus fyrir nýtt starfsár 2025-2026. Einnig luku Alma Stefánsdóttir og Thelma Lind Valtýsdóttir árs setu sem varamenn.

Félagskonur á aðalfundi UAK 2.
© Anton Brink (Anton Brink)

Alls bárust ellefu löggild framboð til stjórnar en það voru þær Alma Stefánsdóttir, Embla Líf Hallsdóttir, Ingveldur Gröndal og Þóra Ólafsdóttir sem hlutu flest atkvæði.

Fráfarandi stjórn UAK.
© Anton Brink (Anton Brink)

Halla Karen Johnsdóttir og Katrín Birna Kristensen hlutu næst flest atkvæði og munu sitja sem varamenn til eins árs. Melkorka Mist Gunnarsdóttir var kjörin formaður fyrir starfsárið 2025 - 2026.

Félagskonur á aðalfundi UAK.
© Anton Brink (Anton Brink)

„Það er mér sannur heiður að taka við formannskeflinu og fá að leiða félagið inn í nýtt starfsár með nýkjörinni stjórn. UAK hefur á undanförnum árum skapað sterkan vettvang fyrir ungar konur til að öðlast innblástur, efla tengsl þvert á atvinnugreinar og deila þekkingu,” segir Melkorka.