Ráðstefna FKA Framtíðar „Hver verður næst?“ fór fram í húsakynnum VÍS á dögunum. Fyrirlesarar voru þær Herdís Fjeldsted hjá Sýn, Guðný Helga Herbertsdóttir hjá VÍS og Ásta Fjeldsted hjá Festi og þemað var „Hver er næst?“ þar sem vísað er til forstjórastólar Kauphallarinnar.

Ráðstefna FKA Framtíðar „Hver verður næst?“ fór fram í húsakynnum VÍS á dögunum. Fyrirlesarar voru þær Herdís Fjeldsted hjá Sýn, Guðný Helga Herbertsdóttir hjá VÍS og Ásta Fjeldsted hjá Festi og þemað var „Hver er næst?“ þar sem vísað er til forstjórastólar Kauphallarinnar.

VÍS konur í Kauphöllinni Sigrún Ragna Ólafsdóttir og Guðný Helga Herbertsdóttir.
© Guna Mezule (Guna Mezule)
Líflegar umræður, kröftugar og einlægar.
© Guna Mezule (Guna Mezule)

Líflegar umræður mynduðust og var einnig boðið upp á umræður með Sigrúnu Rögnu Ólafsdóttur, fyrrum forstjóra VÍS, Ragnhildi Geirsdóttur, fyrrum forstjóra RB og Birnu Einarsdóttur, fyrrum bankastjóra Íslandsbanka.

Kristjana Thors Brynjólfsdóttir þróunarstjóri Sjónvarpslausna hjá Sýn, Herdís Dröfn Fjeldsted er forstjóri Sýnar og Halldóra Gyða.
© Guna Mezule (Guna Mezule)
. Í stjórn FKA Framtíðar eru þær Árdís Ethel Hrafnsdóttir, Ester Sif Harðardóttir, Karlotta Halldórsdóttir, Maríanna Finnbogadóttir, Sigríður Inga Svarfdal, Sjöfn Arna Karlsdóttir og Sólveig Ragnheiður Gunnarsdóttir.
© Guna Mezule (Guna Mezule)

„Þessar öflugu konur deildu með okkur reynslu sinni og þeim áskorunum sem þær hafa mætt á vegferð sinni í forstjórastólinn. Markmiðið var að reyna að svara spurningunni: „Hver verður næst í forstjórastólinn í Kauphöllinni á Íslandi og hvað getum við gert til að breyta þessu?”

Jónína Þorbjörg Guðmundsdóttir forstjóri Coripharma.
© Guna Mezule (Guna Mezule)
Viðburðurinn var vel sóttur og stórglæsilegur styrktur af VÍS.
© Guna Mezule (Guna Mezule)
Auður Bjarnadóttir og Jensína Kristín Böðvarsdóttir hjá Vinnvinn.
© Guna Mezule (Guna Mezule)

Í tilkynningu frá FKA segir að frábær mæting hafi verið á viðburðinn og var mikil ánægja meðal gesta sem fóru allar út með kassann fullan af eldmóði.

Dr. Ásta Dís Óladóttir formaður Jafnvægisvogarráðs.
© Guna Mezule (Guna Mezule)
Guðlaug Hrönn Jóhannsdóttir eigandi hugbúnaðarfyrirtækisins GET Ráðgjöf ehf. og Unnur Elva Arnardóttir forstöðumaður Skeljungi og formaður FKA.
© Guna Mezule (Guna Mezule)
Sólveig Ragnheiður Gunnarsdóttir formaður FKA Framtíðar.
© Guna Mezule (Guna Mezule)