Samál, Samtök álframleiðenda, hélt ársfund sinn á Hótel Nordica fyrir helgi. Á fundinum kom ýmislegt áhugavert fram.

Greint var frá því að útgjöld álveranna hefðu numið 135 milljörðum króna á síðasta rekstrarári og þar af greiddu álverin 6 milljarða í opinber gjöld, 65 milljarða fyrir raforku og 30 milljarða í laun og launatengd gjöld. Hjá álverunum eru ríflega 1.600 stöðugildi.Á fundinum kom einnig fram að álframleiðsla á Íslandi er um fjórðungur af allri álframleiðslu í Evrópu og nú þegar ál hefur verið skilgreint sem lykilmálmur í stefnu ESB um kolefnishlutleysi má vænta þess að eftirspurn aukist eftir áli.

Hlöðver Hlöðversson, formaður stjórnar Samáls og framkvæmdastjóri fjárfestinga hjá Alcoa Fjarðaáli.
© BIG (MYND/BIG)
Guðríður Eldey Arnardóttir, framkvæmdastjóri Samáls, ræddi álframleiðslu á Íslandi og í Evrópu.
© BIG (MYND/BIG)
Sólveig Kr. Bergmann, framkvæmdastjóri samskipta og samfélagsmála hjá Norðuráli, var fundarstjóri á ársfundi Samáls.
© BIG (MYND/BIG)
Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku-, og loftslagsráðherra, tók þátt í pallborðsumræðum.
© BIG (MYND/BIG)
Guðmundur Ben Þorsteinsson, verkefnastjóri hjá Tesla (e. HOP lead at Tesla Rd), flutti erindi á ársfundinum.
Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra ávarpaði fundinn og sagði hún mikilvægi álveranna óumdeilt og að álframleiðsla væri ein af grunnstoðum íslensks efnahagslífs.
© BIG (MYND/BIG)
Vigdís Diljá Óskarsdóttir stýrði pallborðsumræðum. Í pallborði voru: Jóhann Páll Jóhannsson ráðherra, Ásgrímur Sigurðsson, framkvæmdastjóri hjá Fjarðaáli, Sigurður Hannesson framkvæmdastjóri SI og Guðmundur Ben Þorsteinsson, erkefnastjóri hjá Tesla.
© BIG (MYND/BIG)
Sigríður Margrét Oddsdóttir, framkvæmdastjóri SA og Rannveig Rist, forstjóri Rio Tinto á Íslandi.
© BIG (MYND/BIG)
Ragn­ar Árna­son, pró­fess­or í hag­fræði við Há­skóla Íslands og Bjarni Már Gylfason, leiðtogi samfélagsmála og samskipta Rio Tinto á Íslandi.
© BIG (MYND/BIG)
Ársfundur Samáls, sem haldinn var á Hótel Nordica, var vel sóttur.
© BIG (MYND/BIG)