Valhöll fasteignasala fagnaði 30 ára afmæli sl. föstudag og mætti fjöldi gesta til að samgleðjast með eigendum og starfsfólki fasteignasölunnar. Afmælisveislan var haldin í húsakynnum Valhallar að Síðumúla 27.

Fasteignasalarnir og lögfræðingarnir Snorri Björn Sturluson og Óskar H. Bjarnasen tóku við rekstri Valhallar árið 2023. Þeir eru æskuvinir og kynntust þegar Óskar flutti í Kópavoginn og hóf nám á unglingastigi í Kópavogsskóla en þar hafði Snorri alið manninn frá byrjun skólagöngu sinnar.

Snorri og Óskar eru báðir reynslumiklir fasteignasalar sem hafa starfað við allt sem viðkemur fasteignaviðskiptum í mörg ár. Snorri hóf störf við fasteignasölu árið 2005 hjá Remax Lind og flutti sig síðar yfir á Domusnova fasteignasölu.

Hann útskrifaðist með BA-gráðu í lögfræði árið 2013 frá Háskólanum í Reykjavík og meistaragráðu í lögfræði frá sama skóla árið 2015. Árið 2017 öðlaðist hann málflutningsréttindi við héraðsdómstóla.

Snorri starfaði sem lögmaður samhliða fasteignasölunni í þó nokkur ár og fékkst þar við fjölbreytt viðfangsefni, þ.m.t. mörg mál tengdum fasteignum og fasteignagöllum.

Óskar hefur frá árinu 2014 starfað við fasteignasölu og ráðgjöf tengdri fasteignafjármögnun fyrirtækja. Hann starfaði lengst af á Mikluborg áður en hann færði sig yfir til Valhallar. Óskar útskrifaðist með BA-gráðu í lögfræði árið 2006 frá Háskólanum í Reykjavík, meistaragráðu í lögfræði frá sama skóla árið 2010 og meistaragráðu (LL.M) í Evrópurétti frá Háskólanum í Lundi árið 2013.

Einnig hefur Óskar lokið prófi í verðbréfaviðskiptum. Þá starfaði Óskar í fjögur ár við sölu og viðskiptaþróun hjá alþjóðlegu fyrirtæki í Svíþjóð.

„Það var virkilega ánægjulegt að fagna þessum merku tímamótum með fjölmörgum samstarfsmönnum, vinum og vandamönnum. Frá því við tókum við rekstrinum fyrir tveimur árum höfum við hægt og rólega reynt að innleiða ýmsar breytingar til að styrkja reksturinn og upplifun viðskiptavina og starfsfólks enn betur og erum hvergi nærri hættir,“ segir Snorri.
