Undirvagninn gerir það einnig að verkum að gólfið er flatt í afturrýminu sem býður upp á meira fótapláss og þar með þægindi fyrir farþegana. Innanrýmið er líka mjög gott fyrir smábíl að vera.

Byd Dolphin er með 52” skjá fyrir ökumann sem áfastur er stýrisarmi. Sniðug lausn þar sem það gerir það að verkum að þegar stýrið er aðlagað að ökumanni þá á það ekki að hindra sýn á skjáinn.

Fyrir miðju mælaborðsins er síðan 12,8“ rafstýrður og snúanlegur snertiskjár og undir honum eru takkar sem stjórna hinum ýmsu aðgerðum, m.a. gírskiptingu, flýtitakka fyrir miðstöð og viðvörunarljósum.

Einnig er takki fyrir útvarpið þar en hljómkerfi bílsins er með 6 hátölurum og hljómbætikerfi. Útsýni er gott úr bílnum, og þegar bakkað er Dolphin með 360° myndavél og þá eru 2 bílastæðaskynjarar að framan og 3 bílastæðaskynjarar að aftan.

Nánar er fjallað um bílinn í Bílablaði Viðskiptablaðsins. Áskrifendur geta nálgast umfjöllunina í heild sinni hér.