Tesla hefur kynnt til leiks nýjan Model Y sem kemur á markað fljótlega. Nýr Model Y Launch Series, Long Range með fjórhjóladrifi, er með 568 km drægni. Hröðun er frá 0 til 100 km/klst. á 4,3 sekúndum og hámarkshraði 201 km/klst.
Model Y hefur verið framleiddur í yfir 3,5 milljón eintökum í Gigafactory verksmiðjum Tesla í þremur heimsálfum. Frá fyrsta degi hefur Model Y hlotið lof um heim allan fyrir fjölhæfni, einfalda notkun, hagkvæmni, öryggi og sparneytni á viðráðanlegu verði.
Árið 2023 skráði Model Y sig í sögubækurnar þegar hann varð fyrsti rafbílinn til að ná efsta sætinu á listanum yfir mest seldu bílana á heimsvísu, meðal allra aflrása og orkugerða. Þetta er frekari sönnun þess að rafbílar höfði til breiðs hóps og henti við margvíslegar aðstæður.
Model Y sló í gegn í Evrópu en hann tróndi á toppi skráningarlista og var mest seldi bíllinn af öllum gerðum á svæðinu árið 2023, ásamt því að ná ýmsum öðrum staðbundnum árangri.
Þá er Model Y mest seldi rafbíllinn á Íslandi frá upphafi og mest seldi bíllinn á Íslandi árið 2023. Model Y hefur verið framleiddur í Evrópu fyrir Evrópubúa í Berlín-Brandenburg Gigafactory verksmiðju Tesla frá árinu 2022 og hefur nú þegar haft umtalsverð áhrif á umskipti bílaflotans þar yfir í sjálfbærar samgöngur, í takti við markmið Tesla.
Nýr Model Y er með endurhannað ytra byrði sem dregur úr loftviðnámi og býður upp á stöðugleika á miklum hraða, árekstraöryggi og gæðasmíði. Ljósastikurnar að framan og aftan eru innblásnar af hönnun Cybertruck og Cybercab í stað Model 3. Ljósastikan að framan hefur nýtt og einkennandi útlit og styður sjálfvirk aðalljós.
Ljósastikan að aftan nær yfir allan afturhluta bílsins, sem gerir hana ekki aðeins að einni stærstu ljósastikunni í bransanum, heldur er hún einnig með fyrsta óbeina endurskinsljósakerfið í heiminum sem varpar aðgerðum afturljóssins á sérsniðið skraut. Ný myndavél hefur verið sett á framenda bílsins. Hún veitir bílstjórum betri sýn á umhverfið á miðjuskjánum og er með hreinsibúnað og hita til að koma í veg fyrir móðu og bjóða upp á afísingu þegar kalt er í veðri.
Vandaðra og þægilegra farþegarými
Lykiláhersla var lögð á endurbætur í innanrými og bætt andrúmsloft við hönnun nýja Model Y. Sérhver yfirborðsflötur er hjúpaður hljóðeinangruðu gleri og með nýjum hljóðdempandi eiginleikum býður nýr Model Y upp á hljóðlátan akstur. 22% minna veghljóð, 20% lægri högghljóð og 20% minna vindgnauð.
Nýtt low-E gler endurkastar einnig 26% meiri sólarorku og hjálpar til við að viðhalda fullkomnu hitastigi í samvinnu við hljóðlátara og skilvirkara loftræstikerfi. Framsætin voru endurhönnuð til að auka þægindi og eru nú með loftkælingu.
Sætin í annarri sætaröð bjóða einnig upp á aukin þægindi með aðgengilegri beltissylgjum, lengri höfuðpúðum, betri sætisskorðun, rafknúinni hallastillingu og aðgerð til að leggja þau niður. Fyrsta og önnur sætaröðin eru með hita í sætum og vinna snurðulaust með innbyggðu hitastýringarkerfi.
Nýr álklæddur miðjustokkurinn er nú með rennilokunum sem líða mjúklega til og veita aðgang að glasahaldara og aukalegu geymslurými. Álinnfellingar er einnig að finna á stýrinu, hurðaklæðningum og mælaborði.
Farþegar í annarri sætaröð eru nú með sinn eigin 8 tommu snertiskjá með innbyggðri hitastýringu og afþreyingarvalkostum, þar á meðal leikjum, hljóði og myndstreymi.