Nýr Hongqi EHS7 Premium verður kynntur með viðhöfn hjá BL á morgun laugardag og um leið verður blásið til sumarhátíðar á Sævarshöfðanum.
Hinn kínverski Hongqi kom inn á markaðinn sem nýtt vörumerki hjá BL árið 2022 og hefur vakið athygli enda stór og mikill lúxusjeppi hér á ferðinni.
Nýi sportjeppinn býður upp á allt að 460 km drægni og er með 619 hestafla rafmótor og 85 kWh rafhlöðu. Hröðun úr kyrrstöðu er einungis 3,9 sek./klst. og dráttargetan eitt og hálft tonn auk þess sem bíllinn er búinn varmadælu sem nýtist vel yfir vetrartímann.
Meðal þægindabúnaðar má nefna lyklalaust aðgengi með raddstýringu, hita í leðurklæddu stýrinu, loftkæld, upphituð og rafdrifin framsæti með nuddi ásamt hita í aftursætum. Þá er bíllinn búinn vönduðu afþreyingarkerfi með 19 hátölurum sem stjórnað er af 15,5 tommu snertiskjánum, svo einungis fátt eitt sé nefnt enda búnaðarlistinn nokkuð lengri.
Öryggisbúnaður sportjeppans er sömuleiðis vel úti látinn þar sem ekki skortir fjölbreytt aðstoðar- og öryggiskerfi til að hámarka öryggi farþega og aðra vegfarendurí nálægð. Hongqi EHS7 Premium sameinar því í senn hátt notagildi, góðan kraft, mikinn lúxus og nýjustu tækni sem koma sér vel við krefjandi íslenskar aðstæður.