Mercedes-Benz afhenti í gær Frans páfanum í Róm rafdrifinn G jeppa. Jeppinn er sérsmíðaður fyrir páfann og var afhentur fyrir utan Péturskirkjuna.
Mercedes-Benz hefur útvegað Vatíkaninu bifreiðar í 94 ár og í 45 ár hefur páfinn notað hina þekktu „Popemobile“ bifreið byggðan á Mercedes-Benz G-Class.
Bíllinn, líkt og aðrir G jeppar, nær algjörlega handsmíðaður en aðeins einn róbót er í verksmiðju Magna Steyr í Graz í Austurríki. Drifbúnaður bílsins var sérstaklega aðlagaður fyrir lágan hraða í opinberar athöfnum hans.
Fjallað var ítarlega um nýjan G vagninn í rafútgáfu í Bílum, sérblaði Viðskiptablaðsins, í síðustu viku. Bæði er fjallað um reynsluakstur hér á Íslandi og í Graz í Austurríki, þar sem jeppinn hefur verið framleiddur frá upphafi.
Alls ólíkur öðrum G vögnum
Aftursætin voru fjarlægð og í staðinn sett hæðarstillanlegt hásæti sem hægt er að snúa til í allar áttir. Fyrir aftan setuna eru tvö stök sæti fyrir farþega.
Þakið var fjarlægt og bogar tengdir hliðarveggnum. Í vondum veðrum er hægt að setja lokað þak á bílinn. Vinstri afturdyrnar voru fjarlægðar og lamirnar voru færðar til á hægri hurðunum.
Eins og fyrri Popemobile-bílar er nýi bíllinn málaður í klassískum perlu-hvítum lit.
Sagan hófst árið 1930
Mercedes-Benz hefur smíðað bíla fyrir höfuð kaþólsku kirkjunnar og ferðalög hans í næstum 100 ár. Fyrsta ökutækið frá Benz var Nürburg 460 Pullman bifreið fyrir Píus XI páfa árið 1930.
Frá þeim tíma hafa bílar eins og 300 Landaulet, 600 Pullman Landaulet og G jeppar verið notaðir af Vatíkaninu fyrir páfann.
Nokkrar þeirra eru nú til sýnis í Vatíkaninu og á Mercedes-Benz safninu í Stuttgart.