Pietro Frua var ekki aðeins hæfileikaríkur hönnuður, heldur einnig meðal frumkvöðla í því að sameina verkfræði og list í bílaiðnaðinum. Hann hafði einstakt auga fyrir stílhreinum línum og hlutföllum, sem gerðu bíla hans bæði fallega og hagnýta.

Lærði í Fiat skólanum

Frua fæddist árið 1913 í Tórínó á Ítalíu sem var þá hjarta ítalskrar bifreiðaframleiðslu. Hann lærði verkfræði og tækniteikningu ungur að árum í Scuola Allievi Fiat í Tórínó. Þessi skóli, sem var stofnaður árið 1922 af Fiat, var ætlaður til að þjálfa unga menn í tæknilegum og verklegum greinum tengdum bílaframleiðslu.

Með náminu vann hann í bílaverksmiðjunni Stabilimenti Farina, sem var í eigu Giovanni Farina, frænda Battista „Pinin“ Farina, stofnanda eins frægasta ítalska hönnunarhússins, Pininfarina.

Merkasta hönnun Pietro Frua er án efa fyrsta kynslóðin af Quattroporte fyrir Maserati. Bíllinn var framleiddur á árunum 1963-1969 og sótti Frua margt í 5000 GT bílinn. Ekki síst framendann.

Eigið hönnunarverkstæði

Árið 1944 stofnaði Frua sitt eigið hönnunarverkstæði, Carrozzeria Frua, þar sem hann teiknaði og smíða bíla fyrir marga af helstu bílaframleiðendum Evrópu. Hönnun hans varð fljótlega vinsæl fyrir sitt fágæta jafnvægi milli glæsileika og nýstárleika. Verk hans eiga þó nær öll það sameiginlegt að hafa verið framleidd í fáum eintökum.

Tíminn hjá Maserati

Eitt af frægustu verkum Frua var fyrsta kynslóðin af Maserati Quattroporte, sem frumsýnd var árið 1963. Þessi fjögurra dyra, eins og nafnið gefur til kynna, lúxusbíll var sá fyrsti í sinni röð og markaði tímamót í sögunni með því að sameina íburð, sportleika og afköst.

Frua tókst að skapa yfirbyggingu sem var bæði stílhrein og hagnýt, og þessi fyrsta kynslóð Quattroporte er enn í dag talin vera ein fallegasta hönnun hans. Framleiðandinn segir að 770 eintök hafi verið smíðuð af fyrstu kynslóð Quattroporte árin 1963-1969.

Önnur kynslóð Quattroporte sem Frua hannaði var mun fínlegri en sú sem Citroën lét framleiða og er hér fyrir neðan.

Tveir ólíkir Quattroporte

Það var löng bið eftir annarri kynslóðinni og Frua tók málin í eigin hendur og hannaði og smíðaði tvo, jafnvel þrjá, sem nefnast Quattroporte II Frua. Bíllinn var frumsýndur á bílasýningunni í París árið 1971.

Kaupandinn að bílnum var Karim Aga Khan IV, leiðtogi Ismaili Nizarite trúarsamfélagsins. Hann var tryggur viðskiptavinur Maserati og Frua. Hann er ættaður frá Persíu og er talinn vera beinn afkomandi Imam Ali, tengdasonar Múhameðs spámanns, og Fatímu, dóttur hans. Hann býr í Sviss og er og mikill bílasafnari.

Annar bíllinn er talinn hafa verið seldur til Juan Carlos I Spánarkonungs en það er óstaðfest. Bíllinn er í eigu spænsks bílasafnara. Meiri vafi er um þriðja bílinn. Að sögn keypti Aga Khan hann einnig en sá á að hafa eyðilagst í árekstri.

Maserati 5000 GT Coupe. Frua sérhannaði þrjá slíka fyrir viðskiptavini, þar á meðal einn fyrir Aga Khan.

Fjallað er nánar um málið í EV Bílablaðinu sem kom út á dögunum.