Nýjasta kynslóð af ofursportbílnum, Porsche 911 GT3 RS, verður frumsýnd á laugardag milli 12-16 hjá Bílabúð Benna á Krókhálsi 9.

GT3 RS, sem var fyrst frumsýndur erlendis á seinasta ári, byggir á arfleifð fyrri kynslóða en hefur fengið umtalsverðar uppfærslur þegar kemur að afli, loftflæði og aksturseiginleikum.

Nýjasta kynslóð af ofursportbílnum, Porsche 911 GT3 RS, verður frumsýnd á laugardag milli 12-16 hjá Bílabúð Benna á Krókhálsi 9.

GT3 RS, sem var fyrst frumsýndur erlendis á seinasta ári, byggir á arfleifð fyrri kynslóða en hefur fengið umtalsverðar uppfærslur þegar kemur að afli, loftflæði og aksturseiginleikum.

Sportbíllinn kemur með 4 lítra, 6 strokka boxer-vél sem nær allt að 9 þúsund snúningum á mínútu sem skilar 525 hestöflum, 465 Nm hámarkstogi og er aðeins 3,2 sekúndur frá 0-100 km/klst

Straumlínulöguð hönnun tryggir aukinn stöðugleika og betra grip. Spoilerinn er stærri og með 860 kg þyngdarkrafti sem tekur akstursupplifunina og öryggið á enn hærra stig. Aukin notkun á koltrefjum og öðrum léttefnum skilar svo frábæru hlutfalli milli þyngdar og afls.

Endurbætt fjöðrun og fjölbreyttar akstursstillingar gera ökumönnum kleift að stilla bílinn eftir aðstæðum enda geta aðstæður verið afar mismunandi á milli kappakstursbrauta og jafnvel innan einnar keppni eftir því sem að grip brautarinnar breytist, dekk eyðast og eldsneyti minnkar.

911 GT3 RS er einn öflugasti sportbíll sögunnar. Hann sameinar kraft og skilvirkni Porsche með nýjustu kappaksturstækninni og einblínir á aksturseiginleika og getu. Þessi kynslóð er hönnuð fyrir þá sem sækjast ekki aðeins eftir miklum hraða og afli, heldur stórfenglegri akstursupplifun.

Á frumsýningunni munu gestir ekki einungis fá að sjá þrjá nýja GT3 RS heldur verða einnig eldri kynslóðir til sýnis ásamt bílum í einkaeigu. Það verða því ófá hestöflin í sýningarsal Porsche á laugardag. Nýr Macan 4 og Macan Turbo, sem frumsýndir voru fyrir skömmu, verða vitaskuld einnig til sýnis.

„Þeir sem elska Porsche og GT3 línuna vilja ekki missa af þessu. Við verðum með fullan sal af stórglæsilegum GT3 RS bílum, nýjustu kynslóðinni ásamt vel völdum eldri gerðum,“ segir Benedikt Eyjólfsson, forstjóri Bílabúðar Benna.