Um nýliðna helgi var nýr alrafmagnaður G-Class frá Mercedes-Benz frumsýndur hjá Öskju. Viðburðurinn markar tímamót fyrir bílinn þar sem rafmagnstæknin færir hann inn í nýja framtíð án þess að fórna klassískri hönnun eða torfærugetu.
Forsýning fyrir dyggustu aðdáendur fór fram á fimmtudagskvöldið og segir í tilkynningu að bíllinn hafi vakið einróma hrifningu.
„Þegar við kynnum nýjan G-Class er ekki hægt annað en að staldra við og líta til baka á einstaka sögu þessa táknræna bíls. G-Class hefur frá upphafi verið tákn um styrk, glæsileika og óstöðvandi getu – og nýr G 580 með EQ tækni heldur áfram að skrifa þá sögu með framúrskarandi rafmagnstækni og óviðjafnanlegri torfærugetu,“ segir Jón Trausti, forstjóri Öskju.
Fyrsti G-Class bíllinn var kynntur árið 1979 og líkt og fyrri módel, sem hafa notast við hefðbundnari orkugjafa, þá er hönnun G 580 byggð á sterkum framenda, glæsilegum brettaköntum og hinu fræga ferkantaða útliti.