Franski bílaframleiðandinn Renault hefur endurhannað einn vinsælasta fjölskyldubílinn á framleiðslulínunni, hinn rúmgóða Scenic, sem Íslendingar þekkja vel frá því fyrir síðustu aldamót þegar fyrsta kynslóðin kom á markað árið 1996.
Scenic var þá fyrsti fjölnotabíllinn (MPV) á Evrópumarkaði. Fimmta kynslóðin, Scenic E-Tech, sem kemur á markað 2024, er bæði örlítið lengri og breiðari en fráfarandi kynslóð og búinn allri nýjustu tækni á sviði öryggis og þæginda. Mesta umbyltingin er þó að nú kemur bíllinn 100% rafdrifinn þegar hann verður kynntur hjá BL Sævarhöfða á fyrri hluta næsta árs.
Nýr Renault Scenic E-Tech er í flokki SUV- C þar sem áhersla er lögð á gott rými og mikil þægindi fyrir alla farþega ásamt góðu plássi fyrir farangur. Vegna fjölbreyttra eiginleika virkar Scenic E-Tech hvetjandi til ferðalaga eins og markmið Renault með Scenic hefur verið frá upphafi og er ein helsta ástæða vinsælda hans meðal fjölskyldufólks.
Þessum eiginleikum héldu hönnuðir Renault til haga við smíði Scenic E-Tech, sem hefur um 620 km drægni samkvæmt WLTP og er Scenic fyrsti rafbíllinn í sínum bifreiðaflokki sem státar af þeim eiginleika. Að auki er Scenic E-Tech búinn fyrirferðarlítilli en öflugri 87 kWst rafhlöðu og allt að 160 kW rafmótor sem skilar 220 hestöflum og er Scenic E-Tech því í senn röskur, lipur og þægilegur í allri meðhöndlun.
Gólfið er flatt, yfirbyggingin há, ekki síst vegna glerþaksins, og hjólhafið er 2,78 metrar. Allt skapar þetta einstakt innanrými, hvort sem litið er til höfuðs eða fóta. Farangursrýmið er 545 lítrar og stækkanlegt með niðurfellingu sætisbaka. Þá verður OpenR Link margmiðlunarkerfi Scenic E-Tech búið fleiri en 50 hagnýtum snjallforritum á stórum miðlægum skjá fram í, þar á meðal fullkomnu leiðsögukerfi til að auðvelda skipulag ferðalagsins, auk annarra snjallforrita til að mæta óskum farþega sem njóta vilja ferðarinnar til hins ýtrasta.
Nær allir íhlutir til smíði Scenic E-Tech eru framleiddir í Frakklandi til að lágmarka sem kostur er kolefnisspor framleiðslunnar. Þá er um fjórðungur allra efna í farþegarými úr endurunnum efnum auk þess sem hægt er að endurvinna um 90% bílsins að loknum líftíma hans í umferðinni.