Alls seldi Mercedes-Benz Group 2.491.600 bíla á síðasta ári sem er 1,5% aukning frá árinu áður, þrátt fyrir takmarkanir í aðfangakeðju. Árangrinum má þakka áherslu á lúxusbíla og sendiferðabíla, auk rafvæðingar bíla.

Þetta er mesta sala lúxusbíla framleiðandans frá upphafi og þá var 73% aukning á sölu alrafmagnaðra fólksbíla frá Mercedes-Benz á síðasta ári.

Alls seldi Mercedes-Benz Group 2.491.600 bíla á síðasta ári sem er 1,5% aukning frá árinu áður, þrátt fyrir takmarkanir í aðfangakeðju. Árangrinum má þakka áherslu á lúxusbíla og sendiferðabíla, auk rafvæðingar bíla.

Þetta er mesta sala lúxusbíla framleiðandans frá upphafi og þá var 73% aukning á sölu alrafmagnaðra fólksbíla frá Mercedes-Benz á síðasta ári.

„Sölutölur 2023 sýna að lúxusbílar eins og Mercedes-Maybach, G-Class og Mercedes-AMG skiluðu sínum besta árangri frá upphafi. Sala á rafbílum heldur áfram að aukast og var nýjum E-Class sérstaklega tekið vel. Mercedes-Benz sendibílar áttu einnig sitt besta ár hingað til. Við siglum svo af krafti inn í nýtt ár þökk sé nýjum og rafmögnuðum G-Class, Mercedes-AMG GT Coupé og nýjum eSprinter,“ segir Ola Källenius, forstjóri Mercedes-Benz Group AG.

Mercedes-Maybach seldi 19% fleiri bíla árið 2023, sem helst var að þakka mikilli sölu á Mercedes-Maybach GLS og S-Class á öllum lykilmarkaðssvæðum. Á fjórða ársfjórðungi setti Mercedes-Maybach EQS SUV-rafbílinn á markað í Bandaríkjunum og fylgja önnur lykilmarkaðssvæði í kjölfarið árið 2024. Aukin sala Mercedes-AMG á árinu 2023 fólst meðal annars í 76% aukningu í sölu rafbíla með öflugum rafhlöðum.

Sala G-Class var áfram mikil og jókst um 11% á árinu 2023. Á þessu ári er G-rafbíllinn síðan væntanlegur á markað. S-Class er óumdeildur leiðtogi þessa flokks bíla og heldur markaðshlutdeild sinni innan hans, sem er um 50% á öllum lykilmarkaðssvæðum.

Þá jókst sala alrafknúinna fólksbíla frá Mercedes-Benz um 73% yfir árið, í 222.600 selda bíla, sem samsvarar 11% heildarsölu og 19% þegar tengiltvinnabílar eru teknir með. Sala EQE Sedan-bílsins jókst gríðarlega á heimsvísu, um heil 120%, og sala rafbíla á Bandaríkjamarkaði meira en tvöfaldaðist (+167%), að mestu leyti vegna nýja EQE SUV-bílsins.

Sala Mercedes-Benz Vans á heimsvísu jókst um 8% árið 2023, í 447.800 selda bíla, sem er mesta sala frá upphafi. Sala á mikilvægum mörkuðum í Evrópu og Norður-Ameríku jókst um 8% annars vegar, í 279.400 selda bíla, og 13% hins vegar, í 86.400 selda bíla. Í Bandaríkjunum jókst salan um 13%, í 75.100 selda bíla, sem er metfjöldi á ársgrundvelli. Þetta gerir Bandaríkin að öðru stærsta markaðssvæði fyrir sendiferðabíla Mercedes-Benz á heimsvísu.