Um er að ræða 12 metra hátt sitkagrenitré sem verður sett upp á Austurvelli og jólaljósin tendruð á trénu þann 3. desember nk. en Oslóarborg hefur aðkomu að viðburðinum.

Borgarstjóri klæddist viðeigandi öryggisbúnaði og fékk verkfæri til verksins og naut liðsinnis starfsmanna Skógræktarfélags Reykjavíkur.

Reykjavíkurborg færir Þórshafnarbúum tré að gjöf. Tréð var fellt fyrr í mánuðinum og er komið í skip. Það kemur til með að prýða Tinghúsvöllinn  í miðborg Þórshafnar. Líf Magneudóttir forseti borgarstjórnar mun tendra tréð í Þórshöfn laugardaginn 2. desember nk.

Reykjavíkurborg færir einnig íbúum Nuuk ,höfuðborgar Grænlands, jólatré að gjöf .  S. Björn Blöndal, formaður borgarráðs afhendir tréð  í Nuuk þann 3. desember nk. við hátíðlega athöfn.

Eimskip sem hefur í gegnum árin flutt Oslóartréð til Íslands mun sjá um flutning á trjánum til  Grænlands og Færeyja.

Fulltrúar allra borganna voru viðstaddir fellinguna í Heiðmörk.. Kveikt var á varðeldi og boðið  upp á ketilkaffi, kakó og vatn, flatbrauð og grillaðar pylsur.

Einnig opnaði Jólamarkaður Skógræktarfélags Reykjavíkur þar sem boðið verður upp sjálfbær og vistvæn jólatré og náttúrulegar vörur á markaðnum fyrir hátíðarnar.