Örn V. Kjartans­son, fram­kvæmda­stjóri Heklu­reits, segir staðhæfingar sem Bergur Þorri Benja­míns­son hafi sett í færslu á Face­book um íbúð í Heklu­reit vera rangar.

Að sögn Arnar rýnir Bergur í grunn­mynd „og dregur ályktanir út frá henni.“

Viðskiptablaðið greindi frá færslu Bergs Þorra en þar gagnrýndi hann hönnun og stærð íbúðarinnar. Örn segir þó staðhæfingar hans um stærð íbúðarinnar alrangar.

„Um er að ræða hag­kvæma 68 fm íbúð (77 fm m/geymslu) sem er með tveimur svefn­her­bergjum en mikið ákall hefur verið eftir litlum þriggja her­bergja íbúðum á markaðnum.

Til að stækka al­rýmið í íbúðinni er gengið hvort sínu megin inn í her­bergið sem þó er tæpir 12 fm að stærð með góðum skápum. Lengd fyrir hjónarúm er 2,23 metrar,“ segir Örn í svari til Við­skipta­blaðsins.

Býður Bergi Þorra í heimsókn

Örn segir að þetta fyrir­komu­lag sé búið að vera víða í gangi á markaðnum og hefur reynst vel.

„Ungt fólk vill aukið al­rými á kostnað ganga í her­bergjum. Al­hæfing Bergs um að íbúðin sé fyrir fólk 1,80 cm stenst því enga skoðun. Einnig upp­fyllir salerni allar reglu­gerðir og er þar hagan­lega fyrir­komið með þvotta­vél og þurrkara,“ segir Örn.

„Ég vil bjóða Bergi Þorra vel­kominn í heimsókn á Heklu­reit og skoða þar hagan­lega hannaðar íbúðir fyrir ungt fólk,” bætir Örn við að lokum.