Auglýsingastofurnar Pipar\TBWA og The Engine unnu hin eftirsóttu Global Marketing Awards í flokknum besta PPC-herferð heims fyrir auglýsingaherferð sem unnin var fyrir rútufyrirtækið Gray Line Iceland.

„Við erum afar stolt og ánægð að vinna til þessara eftirsóttu verðlauna. Þetta er að sjálfsögðu mikill heiður enda hörð barátta á milli fjölda fyrirtækja um allan heim en í ár stóð valið á milli Gray Line Iceland og Hilton Hotels í Bretlandi í þessum flokki sem eitt og sér er ákveðinn gæðastimpill,“ segir Haukur Jarl Kristjánsson, sem hafði yfirumsjón með framkvæmd herferðarinnar hjá The Engine og Pipar\TBWA.

„Þessi sigur okkar á Global Marketing Awards er til marks um að sú aðferðarfræði sem við höfum verið að þróa áfram og innleiða fyrir okkar viðskiptavini sé á heimsmælikvarða. Að eiga bestu PPC-herferð heims á tímum sem þessum fyrir ferðaþjónustufyrirtæki er óneitanlega svolítið skrítin tilfinning en fyllir okkur líka bjartsýni.“

Haukur Jarl segir það ljóst að hátindi ferðamannaiðnaðarins hafði verið náð í janúar 2018.

„Það sást þegar farþegatölur 2019 voru skoðaðar í samanburði við 2018. Þrátt fyrir samdrátt á milli ára hafði samkeppni á ferðatengdum leitum aldrei verið meiri og sýnileiki almennt dýrari. Helsta áskorun okkar í verkefninu fyrir Gray Line Iceland var að viðhalda vexti í bókunum innan ákveðins kostnaðarramma, þar áttu PPC-herferðirnar veigamikinn þátt og heppnuðust stórkostlega vel. Þessa vinnu eigum við nú alla inni þegar ferðalög til Íslands opnast aftur, það er verðmætt.“