Skoski viskíframleiðandinn Lock Lomond Group hefur keypt The New York Distilling Company í Bandaríkjunum. Það fyrirtæki er staðsett í hjarta Brooklyn á gatnamótum Williamsburg og Bedford-Stuyvesant.
Á vef Decanter segir að Lock Lomond Distillery, sem framleiðir viskí í West Dunbartonshire, hafi á undanförnum árum fært út kvíarnar með kaupum á Champagne Piaff árið 2021 og á Glen‘s Vodka, einu stærsta vörumerki í Bretlandi.
Colin Mathews, stofnandi og forstjóri Lock Lomond Group, segir að kaupin marki annan áfanga í áframhaldandi vexti félagsins en New York-línan mun bætast við viskísamstæðu fyrirtækisins sem inniheldur nú Loch Lomond, Glen Scotia og Littlemill.
Skoski viskíiðnaðurinn hefur nýlega lent í erfiðleikum vegna tollastríðs Donalds Trumps Bandaríkjaforseta. Samkvæmt samtökum skoskra viskíeigenda tapaði iðnaðurinn meira en 600 milljónum punda á 18 mánaða tímabili þegar Trump lagði fyrst tolla árið 2019.
Kaupin fela í sér þrjú þúsund fermetra eimingarstöð og upplýsingamiðstöð fyrir borgarbúa, auk allra vörumerkja NYDC. Aðalvörumerki fyrirtækisins eru Jaywalk Rye, en það framleiðir einnig Mister Katz‘s Rock & Rye, Dorothy Parker-gin og Perry Tot‘s Navy Strength-gin.