5 skref í átt að heilbrigðari og fallegri nöglum.
- Naglabandaskæri - ýtið naglaböndunum niður og snyrtið með naglabandaskærum.
- Naglabandaolía – þegar naglaböndin hafa verið fjarlægð er gott að bera olíu á þau til að mýkja böndin. Þetta er einnig gott að gera áður en neglur eru lakkaðar svo áferðin verði sem fallegust.
- Naglaklippur – klippið neglurnar eins stutt og þið kjósið.
- Naglaþjöl – snyrtið brúnir naglanna með naglaþjöl. Þau sem kjósa að klippa ekki neglurnar sínar geta farið beint í þetta skref og þá snyrt neglurnar aðeins til.
- Naglalakk – Veljið ykkur loks ykkar uppáhalds lit til að lakka á ykkur neglurnar. En heitustu litirnir í sumar eru silfur, súkkulaði brúnn, lavander fjólublár, kóngablár, ljós ólífugrænn og gulur.