Á morgun, laugardag, verður einstök sportbílasýning haldin á Krókhálsi 9 milli kl. 12 og 16, þar sem Porsche-áhugafólk fær að upplifa sögu og þróun Targa-línunnar í gegnum sjö kynslóðir.
Á sýningunni verður til sýnis sjaldséð safn sjö klassískra Porsche 911 Targa-bíla, frá 1967 til 2025. Auk þess verður nýr Porsche 911 Targa GTS frumsýndur.
„Targa bílarnir hafa alltaf haft sérstakan sess meðal Porsche aðdáenda. Þeir sameina sportlega aksturseiginleika, einstaka hönnun og frelsið sem fylgir opnum bíl. Það er eitthvað óútskýranlega heillandi við Targa þakið, hvernig það breytir upplifuninni án þess að fórna styrkleika og stíl,“ segir Benedikt Eyjólfsson, forstjóri Bílabúðar Benna.
Bílarnir koma frá Porsche-safninu í Stuttgart og verða í kjölfar sýningarinnar myndaðir í íslenskri náttúru áður en þeir halda aftur til Þýskalands. Sýningin fer fram í sýningarsal Porsche á Krókhálsi 9 frá 12-16.