Terra umhverfisþjónusta tók í síðustu viku í notkun þrjá nýja Scania P340 metan krókheysisbíla. Um er að ræða nýjustu kynslóð metanbíla sem eru enn umhverfisvænni og hagkvæmari en eldri gerðir.
Bílarnir eru með 9 lítra vél sem skilar 340 hestöflum með tog allt frá 1350Nm upp í 20000 Nm, sem gerir þessi tæki gríðarlega öflug.
Kaupin koma heim og saman við stefnu Terra umhverfisþjónustu um að minnka kolefnisfótspor, ásamt því eru þessi bílar mun hljóðlátari sem dregur verulega úr hljóðmengun.
Þessir hafa nú þegar verið teknir í notkun og munu sinna endurvinnslustöðvum Sorpu á höfuðborgarsvæðinu. Þeir leysa því af hólmi dísilknúnar bifreiðar sem þar voru til staðar.