Stangaveiðifélag Reykjavíkur (SVFR) hefur í áratugi verið með Elliðaárnar á leigu en frá og með næsta ári verður félagið einnig með Úlfarsá á leigu. Báðar þessar laxveiðiár eru innan borgarmarkanna.  Úlfarsá, oft nefnd Korpa, er sjö kílómetra löng laxveiðiá. Áin á upptök sín í Hafravatni og rennur til sjávar í Blikastaðakró. Á leið sinni til sjávar liðast hún meðal annars í gegnum golfvöllinn við Korpúlfsstaði.

Hreggnasi er í dag með ána á leigu og verður með hana í sumar. Fyrir skömmu ákvað Veiðifélag Úlfarsá/Korpu að vera með lokað útboð. Var tilboði SVFR tekið og skrifað undir fimm ára samning, sem tekur gildi á næsta ári eins og áður sagði.

Fjöldi samninga

Stangaveiðifélag Reykjavíkur gerði ýmsa samninga á síðasta ári. Félagið framlengdi samning um leigu á Langá á Mýrum og verður með ána á sínum snærum til árins 2019. Félagið bauð í fyrra í fyrsta skiptið upp á veiðileyfi í Haukadalsá og var það gert á grundvelli eins árs samnings sem rann úr gildi síðasta haust. Skemmst er frá því að segja að Veiðifélag Haukadalsár og SVFR skrifuðu í nóvember síðastliðnum undir nýjan 5 ára samning.

Síðasta haust skrifaði SVFR einnig undir 5 ára samning um leigu á sjóbirtingssvæðinu Eldvatnsbotnum og þá var einnig framlengdur samningur um Fáskrúð en félagið er með helming veiðidaga þar á móti Stangaveiðifélagi Akraness.

Loks ber að nefna að skrifað var undir 10 ára samning við veiðiréttareigendur  Varmár á Suðurlandi og á að byggja veiðihús við ána. Fyrir nokkrum vikum var gerður 4 ára umboðssölusamningur við leigutaka Efri Flókadalsár í Fljótum en þar er sjóbleikjuveiði.