Sigurður Sævar Magnúsarson er ungur og metnaðarfullur myndlistarmaður sem hefur markað sér stóran sess í íslenskri listasenu. Þrátt fyrir ungan aldur hefur hann skarað fram úr með sjálfstæðum vinnubrögðum og djúpri ástríðu fyrir sköpun.
Sigurður Sævar er í forsíðuviðtali í nýjasta tölublaði Eftir vinnu.
ÞJÁÐI LISTAMAÐURINN
Sigurður Sævar er þekktur fyrir lífsgleði sína og jákvætt viðmót, sem er í andstöðu við þá rómantísku hugmynd um „þjáða listamanninn“ sem oft er tengd við listsköpun. Hann segir þjáninguna líklega vera mýtu, það sé vissulega líka hægt að skapa út frá gleðinni. „Ég er mjög hress maður vegna þess að ég er að lifa ákveðinn draum og hef ákaflega gaman af mínu starfi,“ útskýrir hann.
Hann rifjar í kjölfarið upp minnisstæða athugasemd úr námi sínu í Hollandi. „Á fyrsta árinu mínu í akademíunni vorum við leidd inn, eitt í einu, í herbergi þar sem yfirmaður myndlistardeildarinnar og allir kennararnir sátu. Tilgangurinn var að fara yfir umsagnir um frammistöðu okkar. Eina athugasemdin sem ég fékk um mína framkomu var sú að ég sýndi ekki nógu miklar tilfinningar. Þau sögðu að ég mætti koma oftar reiðari og leiðari í skólann. Ég tók þessu mjög alvarlega og sagðist ætla reyna bæta mig í þessu. Þetta var háalvarlegt mál, ég væri bara allt of hress.“
Viðtalið við Sigurð Sævar er að finna í nýjasta tölublaði Eftir vinnu sem kom út í dag.