Agla Eir Vilhjálmsdóttir hefur gengið til liðs við lögfræðistofuna BBA//Fjeldco, að því er kemur fram í fréttatilkynningu. Agla starfaði áður sem lögfræðingur Viðskiptaráðs Íslands.

Agla Eir Vilhjálmsdóttir hefur gengið til liðs við lögfræðistofuna BBA//Fjeldco, að því er kemur fram í fréttatilkynningu. Agla starfaði áður sem lögfræðingur Viðskiptaráðs Íslands.

Agla hefur þekkingu á fyrirtækjalögfræði, einkum á sviðum stjórnarhátta og sjálfbærniregluverks, auk þess sem hún stýrði meðal annars útgáfu leiðbeininga um stjórnarhætti og sat í samráðshópi útgefenda leiðbeininga stjórnarhátta í Evrópu og á Norðurlöndunum.

Þá hélt Agla utan um starfsemi Gerðardóms Viðskiptaráðs Íslands sem framkvæmdastjóri, en hún situr nú í stjórn dómsins.

„Með sívaxandi kröfum á fyrirtæki á sviði sjálfbærni, hefur eftirspurn eftir slíkri ráðgjöf að sama skapi aukist. Með ráðningu Öglu styrkir BBA//Fjeldco teymið þekkingu sína á þessu sviði og getu til þess að veita viðskiptavinum stofunnar enn heildstæðari ráðgjöf,“ segir í tilkynningu lögfræðistofunnar.

Agla er lögfræðingur frá lagadeild Háskólans í Reykjavík og hún útskrifaðist nýverið með LL.M. gráðu frá Columbia Law School í Bandaríkjunum. Í námi sínu við Columbia lagði Agla sérstaka áherslu á félagarétt, stjórnarhætti og sjálfbærniregluverk. Þá sat hún einnig í stjórn gerðardómssamtaka háskólans, Columbia Arbitration Association.