Í byrjun júní mun Hjördís Þórhallsdóttir hefja störf sem þjónustustjóri hátæknigagnavers atNorth á Akureyri en þar mun Hjördís meðal annars sjá um að tryggja góða innleiðingu nýrra viðskiptavina atNorth.
Hjördís er reynslumikill stjórnandi og hefur tekist á við fjölbreytt verkefni alveg frá því hún útskrifaðist sem verkfræðingur.
Hún segist mjög spennt að taka við nýja hlutverkinu og hefur fyrirtækið einnig sagt að reynsla Hjördísar muni koma að góðum notum við stækkun gagnaversins sem kalli á bæði aukinn mannafla og aukna þjónustu.
Hjördís útskrifaðist með B.Sc.-gráðu í vöruhönnunartæknifræði frá Háskólanum í Skövde í Svíþjóð árið 1998 en þeim skóla kynntist hún þegar hún var að útskrifast úr Menntaskólanum á Akureyri.
Nánar er fjallað um Hjördísi í Viðskiptablaði vikunnar. Áskrifendur geta nálgast umfjöllunina í heild sinni hér.