Alda Sigurðardóttir hefur verið ráðin sem framkvæmdastjóri mannauðs hjá Innnes ehf. sem er ein af stærstu matvöruheildverslunum landsins. Hún kemur úr starfi sem framkvæmdastjóri mannauðs hjá Sýn, sem á Vodafone, Stöð 2, vísir.is og fleiri fyrirtæki.
Áður starfaði Alda sem stjórnendaþjálfari í eigin fyrirtæki Vendum ehf. og vann með mörgum af stærstu fyrirtækjum landsins bæði hérlendis og erlendis. Hún starfaði sem aðstoðarmaður rektors Háskólans í Reykjavík og kynningar- og samskiptastjóri skólans en þar áður sem viðskiptastjóri hjá SJÁ og fræðslustjóri VR.
,,Ég er gífurlega spennt að takast á við þetta spennandi starf hjá þessu metnaðarfulla og vaxandi félagi sem leggur áherslu á fagmennsku á öllum sviðum félagsins. Félagið hefur skýra sýn sem ég hlakka til að vinna eftir og kynnast starfsfólkinu og starfseminni, allt frá þjónustu við trausta viðskiptavini yfir í hátækni vöruhús sem er á heimsmælikvarða,“ segir Alda.
Hún var einnig stundakennari við viðskiptadeild Háskóla Íslands og kenndi einnig við MBA námið í HR, ásamt því að halda fjölda stjórnunartengdra námskeiða við Opna háskólann. Alda er stjórnmála- og atvinnulífsfræðingur frá Háskóla Íslands, með MBA gráðu frá Háskólanum í Reykjavík og lauk námi í stjórnendamarkþjálfun frá Opna Háskólanum í HR og Coach University.
„Það er mikill fengur að fá Öldu inn í framkvæmdastjórn félagsins því hún hefur fjölbreytta stjórnunar- og starfsreynslu og býr yfir mikilli reynslu við að styðja stjórnendur og starfsmenn að ná stefnumiðuðum markmiðum. Hún hefur einnig dýrmæta reynslu í mannauðsmálum og uppbyggingu árangursríkrar fyrirtækjamenningar, sem á eftir að nýtast félaginu vel í áframhaldandi sóknarvegferð,“ segir Magnús Óli Ólafsson, forstjóri Innnes.