Auglýsingastofan Pipar\TBWA hefur ráðið Ölmu Finnbogadóttur, sérfræðing í samfélagsmiðlum, til starfa í samskipta- og almannatengsladeild stofunnar, sem Lára Zulima Ómarsdóttir leiðir.

Í tilkynningu segir að með ráðningu Ölmu styrkist samskipta- og almannatengsladeild Pipar\TBWA enn frekar, en Pipar\TBWA hefur nú á að skipa sérfræðingum sem geta sinnt öllum þáttum samfélagsmiðla og almannatengsla fyrir fyrirtæki og einstaklinga.

„Samskipti fyrirtækja og almannatengsl eru mikilvægur þáttur í velgengni fyrirtækja og markmið Pipar\TBWA er að vera meðal þeirra fremstu á þessu sviði. Pipar\TBWA hefur því að undanförnu styrkt alla þætti þjónustunnar,“ segir Lára Zulima Ómarsdóttir, leiðtogi almannatengsla hjá Pipar\TBWA.

Alma hefur búið í New York í Bandaríkjunum undanfarin misseri þar sem hún stundaði meistaranám í Fashion Management við Parsons School of Design. Fashion Management, sem gæti útlagst sem tískustjórnun á íslensku, er fræðigrein sem snýr að stjórnun hvers kyns tískutengdrar starfsemi, allt frá hönnun til markaðssetningar til framleiðslu.

Meðfram náminu starfaði Alma hjá samfélagsmiðlastofunni LYF Socials við áhrifavaldamarkaðssetningu (Influencer marketing) og markaðssetningu smærri fyrirtækja á samfélagsmiðlum. Þá var hún í starfsnámi hjá tískutímaritinu V Magazine.

Alma er með B.A.-gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands og starfaði áður hjá Kviku banka.