Í framhaldi af tilfærslu tryggingarekstrar í dótturfélagið VÍS tryggingar hf. sem tók gildi um áramótin hefur verið tekin ákvörðun um að Skagi starfræki mannauðssvið sem mun þjóna öllum félögum samstæðunnar.
Anna Rós Ívarsdóttir, sem gegnt hefur um árabil stöðu framkvæmdastjóra mannauðs og menningar hjá VÍS, hefur þá tekið við starfi framkvæmdastjóra mannauðs hjá Skaga og mun jafnframt taka sæti í framkvæmdastjórn Skaga.
„Það er mjög ánægjulegt að fá Önnu Rós til liðs við okkur í framkvæmdastjórn Skaga. Anna Rós hefur áralanga reynslu af mannauðsmálum, sem hafa verið mikilvægur þáttur í starfsemi VÍS á liðnum árum. Það er sérstaklega ánægjulegt að öll félög innan samstæðunnar njóti nú góðs af því framúrskarandi starfi sem mannauðsteymið hefur unnið hjá VÍS á liðnum árum,“ segir Haraldur I. Þórðarson, forstjóri Skaga.
Samhliða þessum breytingum verða regluvörslueiningar dótturfélaganna sameinaðar í móðurfélaginu, þar sem regluvarsla fyrir samstæðufélög verður starfrækt.