Anna Þorbjörg Jónsdóttir hefur verið ráðin til starfa sem forstöðumaður viðskiptaþróunar og viðskiptatengsla hjá Alfa Framtaki. Samhliða ráðningunni gengur Anna Þorbjörg inn í hluthafahóp félagsins.
Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Afla Framtak.
„Anna Þorbjörg býr yfir áralangri reynslu af störfum á alþjóðlegum fjármálamörkuðum. Hún kemur til Alfa Framtaks frá Fossum fjárfestingarbanka þar sem hún starfaði sem framkvæmdastjóri eignastýringar. Þar áður starfaði Anna Þorbjörg sem fjárfestingastjóri hjá World Financial Desk, hátækni fjármálafyrirtæki með aðsetur í New York, en hún var jafnframt einn stofnenda félagsins og stjórnarformaður,“ segir í tilkynningu fyrirtækisins.
Anna Þorbjörg er með B.Sc. gráðu í hagfræði frá Háskóla Íslands, M.A. gráðu í hagfræði frá UCLA og M.Sc. gráðu í fjármálastærðfræði frá USC. Anna Þorbjörg hefur lokið prófum í verðbréfaviðskiptum á Íslandi og í Bandaríkjunum.
„Ég hlakka mikið til að taka þátt í spennandi verkefnum og áframhaldandi vexti hjá Alfa Framtaki með framúrskarandi teymi. Ég hef lengi haft áhuga á framtaksfjárfestingum og þeirri jákvæðu uppbyggingu sem slíkar fjárfestingar leiða gjarnan til fyrir fyrirtæki, fjárfesta og samfélagið,“ segir Anna Þorbjörg í tilkynningu en hún hefur störf hjá félaginu 1. september næstkomandi.
„Við erum spennt og hamingjusöm að fá Önnu Þorbjörgu til liðs við okkur. Hún býr að dýrmætri þekkingu, tengslum og reynslu hér heima og erlendis. Það veganesti er mikilvæg viðbót í þá vegferð sem Alfa Framtak er á," segir Gunnar Páll Tryggvason, framkvæmdastjóri Alfa Framtaks.
Alfa Framtak ehf. er rekstraraðili sérhæfðra sjóða, en fyrirtækið sérhæfir sig í fjárfestingum og stuðningi við stjórnendur, athafnafólk og fyrirtækjaeigendur sem vilja ná því besta út úr sínum rekstri. Alfa Framtak rekur tvo framtakssjóði með með samtals 22 milljarða króna í áskriftarloforð.