Reitir fasteignafélag hefur ráðið tvo sérfræðinga til starfa, Ágúst Hilmarsson sem sérfræðing í greiningum á fjárfestingareignum og Ara Þorleifsson sem verkefnastjóra framkvæmda.
„Ráðningarnar eru liður í vegferð Reita um eflingu félagsins með fjárfestingu í atvinnuhúsnæði og uppbyggingar eignasafnsins,“ segir í fréttatilkynningu.
Ari Þorleifsson, nýr verkefnastjóri framkvæmda, bætist við framkvæmdasvið Reita, þar sem hann mun stýra stærri framkvæmdaverkefnum.
Hann er með B.Sc. gráðu í byggingafræði frá Háskólanum í Reykjavík, meistararéttindi í húsasmíði og byggingastjóraréttindi. Ari hefur reynslu af verkefnastjórnun og hönnun innan byggingageirans, m.a. frá störfum sínum hjá Arkís og Basalt arkitektum þar sem hann kom að verkefnum eins og Nýja Landspítalanum, Baðstöðvum Bláa Lónsins og Fjallahóteli Kerlingafjalla.
„Sem verkefnastjóri framkvæmda hjá Reitum leiðir Ari umbreytingarverkefni en slík verkefni eru mynda mikilvægan vaxtarstólpa hjá félaginu.“
Ágúst Hilmarsson, nýr sérfræðingur í greiningum á fjárfestingareignum, kemur til Reita frá ráðgjafarsviði KPMG þar sem hann sérhæfði sig í verðmötum, aðstoð við kaup og sölu fyrirtækja og arðsemisgreiningum á fjárfestingatækifærum.
Hann er með B.Sc. gráðu í rekstrarverkfræði frá Háskólanum í Reykjavík og hefur hlotið reynslu á sviði fjármála- og arðsemisgreininga. Sem sérfræðingur í greiningum á fjárfestingareignum sinnir Ágúst lykilhlutverki innan fjárfestingasviðs Reita, sem meðal annars felur í sér greiningu á virðisforsendum fjárfestingareigna, gerð virðismats og þátttöku í samningaviðræðum um kaup og sölu fjárfestingareigna.
„Við erum afar stolt af því að fá Ágúst og Ara til liðs við okkur. Báðir búa þeir yfir reynslu og sérþekkingu sem mun nýtast Reitum á þeirri vegferð sem fram undan er,“ segir Guðni Aðalsteinsson, forstjóri Reita fasteignafélags.
„Ráðningar þeirra endurspegla metnað félagsins til að byggja upp öflug fjárfestinga- og framkvæmdasvið með getu til að fylgja eftir þeirri metnaðarfullu vaxtastefnu sem Reitir hafa sett. Við bjóðum þá hjartanlega velkomna og hlökkum til samstarfsins.“