Árni Geir Valgeirsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri hjá Origo og mun hann leiða hugbúnaðarsvið félagsins frá októbermánuði.

Hann hefur víðtæka reynslu af stjórnun í hugbúnaðarþróun og rekstri en áður starfaði Árni hjá Íslandsbanka frá árinu 2011 þar sem hann var forstöðumaður stafrænnar þróunar á upplýsingatæknisviði. Fyrir það vann Árni við hugbúnaðarþróun og rekstur hjá Tern Systems, VIJV og Oz.

„Ég er bæði stoltur og spenntur að ganga til liðs við teymið hjá Origo sem hefur náð frábærum árangri í vöruþróun og taka þátt í þeirri vegferð sem er þar fram undan,“ segir Árni Geir Valgeirsson.

Árni er með B.Sc. gráðu í tölvunarfræði frá Háskólanum í Reykjavík og M.Sc. gráðu í verkfræði með áherslu á máltækni og gervigreind frá Álaborgarháskóla.

„Við erum stolt af þessari ráðningu, en Árni er reynslumikill stjórnandi með sterka tæknilega þekkingu á þeim sviðum sem við viljum leggja áherslu á. Við höfum raðað upp liði sem gerir okkur í stakk búin til að takast á við áskoranir og tækifæri framtíðarinnar,” segir Ari Daníelsson, forstjóri Origo.