Árni Grétar Finnsson hefur tekið við starfi aðstoðarmanns Guðrúnar Hafsteinsdóttur, formanns Sjálfstæðisflokksins. Hann starfaði áður sem aðstoðarmaður Guðrúnar í dómsmálaráðuneytinu og heldur því samstarf þeirra áfram á nýjum vettvangi.

Hann hefur mikla reynslu af félagsstörfum og gegnt ýmsum trúnaðarstörfum innan Sjálfstæðisflokksins, m.a. sem formaður Stefnis, félags ungra sjálfstæðismanna í Hafnarfirði.

Árni Grétar lauk meistaraprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands árið 2016 og hlaut málflutningsréttindi fyrir héraðsdómi árið 2022.

Hann hefur starfað sem lögmaður á efnahags- og samkeppnishæfnissviði Samtaka atvinnulífsins, sem fulltrúi á Landslögum – lögfræðistofu og hjá CATO lögmönnum, auk þess að hafa verið blaðamaður á Morgunblaðinu og á mbl.is.

Auk þess sat Árni í stjórn Orators og Stúdentaráðs Háskóla Íslands og hefur hann einnig starfað í fjölmörgum nefndum og stjórnum á vegum stjórnvalda og í atvinnulífinu.