Árni Oddur Þórðarson, fyrrverandi forstjóri Marels, hefur tekið við stjórnarformennsku hjá fjárfestingarfélaginu Eyri Invest hf. Greint er frá þessu í fréttatilkynningu.

Á hluthafafundi Eyris í gær var ný stjórn félagsins kjörin. Stjórnina skipa Árni Oddur, Atli Björn Þorbjörnsson, og Þórður Magnússon.

„Eyrir Invest stendur á tímamótum. Félagið fagnar 25 ára afmæli á árinu og mun stjórn félagsins á næstu mánuðum einbeita sér að því verkefni að móta endurnýjaða stefnu félagsins til framtíðar,“ segir í tilkynningunni.

Á aðalfundi félagsins í lok mars samþykktu hluthafar Eyris samhljóða að greiða út hlutabréf í JBT Marel annars vegar og í Fræ Capital hins vegar, sem endurgjald við lækkun hlutafjár.

Stofnendur félagsins, feðgarnir Þórður Magnússon og Árni Oddur, eru nú eigendur félagsins til helminga – Þórður í eigin nafni og Árni Oddur í gegnum eignarhaldsfélög sín, Sex álnir og 12 Fet.

„Sérstakar þakkir fær fráfarandi stjórn undir forystu Friðriks Jóhannssonar, sem leyst hefur verkefni síðustu ára af kostgæfni. Þar ber hæst stuðningur við sameiningu JBT og Marel, stofnun Fræ Capital til að halda utan um sprotastarfssemi félagsins, og uppgjör allra skuldbindinga við lánadrottna sem var forsenda fyrir valfrjálsu tilboði til hluthafa Eyris Invest,“ segir í tilkynningu Eyris.

„Stjórnendur Eyris hafa staðið faglega að verkefni síðustu tveggja ára sem lauk með útgreiðslu hlutafjár, þar sem ráðgjafar félagsins voru Arctica Finance, Logos og KPMG.“

Þá er fráfarandi hluthöfum félagsins þakkað fyrir samstarfið en sumir þeirra hafa fylgt félaginu í tvo áratugi.