Atli Stefán Yngvason, ráðgjafi og viðskiptafræðingur, hefur verið ráðinn til fjarskiptafélagsins Mílu þar sem hann mun bera ábyrgð á samskiptum, mörkun og framtíðarsýn Mílu.
Hann hóf starfsferil sinn hjá Margmiðlun árið 2004, sem stuttu síðar var keypt af Og Vodafone. Atli starfaði þá hjá Vodafone í næstum áratug en síðustu tíu árin hefur hann starfað hjá ráðgjafastofunni Koala.
„Við erum spennt að fá reynslubolta eins og Atla til Mílu. Hann er með yfir 20 ára feril í fjarskiptum, sem mun styðja vel við okkar vegferð í uppbyggingu, rekstri og viðhaldi á öflugum fjarskiptainnviðum. Míla starfar í kvikum hátæknigeira og setur sér háleit markmið um að veita mikil gæði, góða upplifun og trausta fjarskiptainniviði,“ segir Erik Figueras Torras forstjóri Mílu.
Atli Stefán hefur komið að stofnun ýmissa fyrirtækja, s.s að einu elsta starfandi hlaðvarpi Íslands, Tæknivarpinu, Vegangerðinni, rútufélaginu Reykjavik Sightseeing, og einnig kom hann að stofnun segulómunarstofunnar Intuens.