Berglind Hákonardóttir bættist nýverið í eigendahóp PwC, að því er kemur fram í tilkynningu. Berglind hefur starfað hjá PwC um 16 ára skeið og nú eru samtals 15 eigendur hjá PwC.

Berglind hóf störf hjá PwC í ársbyrjun 2008. Við komu hennar til PwC var opnuð starfsstöð á Hvolsvelli sem hún hefur stýrt frá upphafi en starfsmenn þar eru nú 5 talsins.

Berglind útskrifaðist með Cand. oecon. gráðu frá Háskóla Íslands árið 2003 og hlaut löggildingu í endurskoðun árið 2006. Hún býr á Hvolsvelli með þremur börnum sínum.

„Það er okkur mikil ánægja að fá Berglindi inn í eigendahópinn. Hún er afar öflug og býr yfir mikilli þekkingu og reynslu á fagsviðinu. Ennfremur nýtur hún virðingar á meðal viðskiptavina og samstarfsfólks. Ég býð Berglindi hjartanlega velkomna í eigendahóp PwC” segir Ljósbrá Baldursdóttir forstjóri PwC,“ segir Ljósbrá Baldursdóttir, forstjóri PwC.