Sjálfstæðisflokkurinn hefur ráðið Bertu Gunnarsdóttur sem fjármálastjóra flokksins og mun hefja störf 2. maí næstkomandi. Hún mun jafnframt gegna hlutverki staðgengils framkvæmdastjóra.

Berta er lögfræðingur að mennt en hún lauk meistaraprófi frá Háskólanum í Reykjavík. Hún býr yfir víðtækri reynslu á sviði lögfræði, einkum á sviði skattamála. Hún starfaði nú síðast hjá Skattinum á eftirlits- og rannsóknarsviði með áherslu á peningaþvætti.

Áður starfaði hún sem fulltrúi hjá lögmannsstofunum LOGOS og Libra lögmönnum. Þá var hún áður framkvæmdastjóri og eigandi Modulus ehf., sem sérhæfir sig í framleiðslu verksmiðjuframleiddra húsa fyrir íslenskar aðstæður.

„Það er mér mikill heiður að fá að taka þátt í því mikilvæga starfi sem fram undan er hjá Sjálfstæðisflokknum. Ég hlakka til að vinna með öflugu teymi flokksmanna við að efla innviði Sjálfstæðisflokksins og vinna að framgangi þeirra stefnumála sem flokkurinn stendur fyrir,“ segir Berta Gunnarsdóttir.

Berta hefur verið virkur þátttakandi í starfi Sjálfstæðisflokksins á umliðnum árum. Hún situr í miðstjórn flokksins og gegnir embætti varaformanns Varðar – fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík. Þá leiddi hún uppstillingarnefnd Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík í aðdraganda alþingiskosninganna 2024.

„Með ráðningu Bertu styrkir Sjálfstæðisflokkurinn innviði sína enn frekar á mikilvægum sviðum fjármála og rekstrar, á sama tíma og flokkurinn horfir til nýrra tækifæra og verkefna í þágu flokksmanna og samfélagsins alls,“ segir Björg Ásta Þórðardóttir, framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins.

Sigurbjörn lætur af störfum fyrir Sjálfstæðisflokkinn

Sigurbjörn Ingimundarson lætur af störfum sem aðstoðarframkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins eftir tíu ára starf hjá flokknum.

Hann var framkvæmdastjóri þingflokksins árin 2014 til 2022, en þá tók hann við stöðu aðstoðarframkvæmdastjóra við hlið Þórðar Þórarinssonar, framkvæmdastjóra flokksins, sem lét af starfi um síðustu mánaðarmót eftir ellefu ára farsælt starf.

Samkomulag er um að Sigurbjörn verði næstu vikurnar áfram til ráðgjafar um málefni flokksskrifstofunnar meðan nýtt fólk tekur við þeim margbreytilegu verkefnum, sem þar er sinnt.

Sigurbjörn segir að á þeim tímamótum í flokksstarfinu nú, þegar ný forysta tekur við keflinu að loknum vel heppnuðum landsfundi, þar sem fráfarandi formaður lét af störfum eftir farsæla forystu, sé mikilvægt að svigrúm gefist fyrir nýja félaga til þess að koma að og móta flokksstarfið framundan.

„Þessi rúmu 10 ár hjá flokknum hafa verið afar gefandi og skemmtileg. Fyrir mig hefur verið ómetanlegt að fá tækifæri til þess að vinna með fjölmennum og fjölbreyttum hópi samherja um allt land í að skerpa á og fylgja eftir grunnhugsjónum sjálfstæðisstefnunnar. Samferðarfólki mínu hjá flokknum þakka ég afar ánægjuleg kynni og samstarfsfólki mínu í gegnum tíðina fyrir traust og gott samstarf. Ég óska öllum þeim sem starfa á vettvangi flokksins velfarnaðar í mikilvægum störfum fyrir flokkinn, land og þjóð.“

„Ég þakka Sigurbirni mikilvægt og óeigingjarnt starf í þágu flokksins, ljúfmennsku og lipurð í öllum samskiptum og við úrlausn mála og óska honum velfarnaðar í þeim verkefnum sem hans bíða,“ segir Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins.